22.7.2010 |
Almennt efni
| kmjoll
Auglýst eftir tónlistaratriðum á Bókasýninguna í Frankfurt
ÚTÓN, í samstarfi við Sagenhaftes Island, auglýsir eftir tónlistaratriðum fyrir Bókasýninguna í Frankfurt 2011 en þar verður Ísland sérstakur heiðursgestur. Þarna gefst ekki einungis einstakt tækifæri til að koma á framfæri íslenskri bókmenningu heldur líka til að kynna íslenska tónlist. Leitað er eftir atriðum úr öllum tónlistarstefnum. Miðað er við að tónleikar yrðu haldnir í september/október 2011. Sérstaklega er horft til þess að viðkomandi verkefni hafi tengsl í Þýskalandi og vinni að hugsanlegri útgáfu og tónleikabókunum með þýskum aðilum til að sem bestur árangur náist. Umsóknir skulu innihalda: Ferilskrá Aðgang að tóndæmum á stafrænu formi. Skilafrestur er 5. ágúst og umsóknum skal skila til Kamillu Ingibergsdóttur, verkefnastjóra hjá ÚTÓN, á kamilla@icelandmusic.is eða í Borgartún 35, 105 Reykjavík. Nánari upplýsingar veitir Kamilla í síma 863-3499. Kær kveðja, Kamilla
|
3.6.2010 |
Almennt efni
| axel@ferdatorg.is
Suður mætir Norðri
|
2.6.2010 |
Almennt efni
| kmjoll
Rut Ingólfsdóttir kjörin nýr heiðursfélagi
Á aðalfundi félagsins 27. maí síðastliðinn var Rut Ingólfsdóttir útnefnd heiðurfélagi F.Í.T. Hún er tuttugasti heiðursfélagi F.Í.T. útnefndur frá upphafi en alls eru átta eftirlifandi heiðursfélagar í félaginu. Hún hlaut skrautritað heiðursfélagaskjal FÍT og blómvönd af því tilefni og Hallveig Rúnarsdóttir, stjórnarmaður, fór yfir lífshlaup Rutar:
Rut Ingólfsdóttir fiðluleikara Rut stundaði fiðlunám í Reykjavík frá unga aldri undir handleiðslu Ruthar Hermanns, Einar G. Sveinbjörnssonar og Björns Ólafssonar. Erlendis stundaði Rut nám við tónlistarháskólana í Málmey í Svíþjóð og Brussel í Belgíu, þar sem André Gertler var kennari hennar og lauk hún prófi þaðan með láði árið 1969. Rut hefur svo sannarlega látið að sér kveða í íslensku tónlistarlífi. Hún var fastráðin í Sinfóníuhljómsveit Íslands til margra ára og um tíma einn af konsertmeisturum hennar. Einnig var hún konsertmeistari með Pólýfónkórnum og fleiri kórum, kennari við Tónlistarskólann í Reykjavík og leiðari í Reykjavíkurkvartettnum. Þá er ótalið farsælt starf hennar í Skálholti en hún er meðlimur í Bachsveitinni í Skálholti og Skálholtskvartettinum. Stærsta afrek Rutar á starfsferlinum er þó líklegast óeigingjarnt og árangursríkt starf með Kammersveit Reykjavíkur. Hún stofnaði sveitina árið 1974 ásamt 12 hljóðfæraleikurum, sem flestir voru nýkomnir heim frá námi erlendis og störfuðu í Sinfóníuhljómsveit Íslands og við Tónlistarskólann í Reykjavík. Markmiðið með stofnun hennar var að gefa áheyrendum kost á reglulegum tónleikum með kammertónlist, allt frá barokktímanum til nútímans, og um leið að gefa hljóðfæraleikurunum tækifæri til að glíma við áhugaverð verkefni. Rut var formaður sveitarinnar frá upphafi 1974 þar til hún afhenti það kefli til Guðrúnar Hrundar Harðardóttur á síðasta ári. Samhliða formennskunni var Rut fyrsti fiðluleikari sveitarinnar þennan tíma og kom einnig margoft fram sem einleikari. Undir styrkri stjórn Rutar hefur starf Kammersveitar Reykjavíkur blómstrað og hróður hennar borist víða um lönd ásamt því að vera burðarstoð í tónlistarlífi hér á Íslandi. Rut hefur einnig náð glæstum árangri sem einleikari. Hún hefur komið fram á tónleikum um allan heim, á Norðurlöndum og víða í Evrópu, Kína og í Japan. Rut hefur einnig verið dugleg að halda tónleika hér innanlands, og einnig tekið virkan þátt í því að vekja áhuga íslenskra barna á fiðlunni og klassískri tónlist. Hún hefur frumflutt fjölmörk verk eftir íslenska höfunda ásamt því að flytja helstu perlur tónbókmenntanna fyrir einleiksfiðlu og starfað með flestu af okkar fremsta tónlistarfólki. Rut hefur margoft hlotið viðurkenningu fyrir störf sín að tónlistarmálum, t.d. Menningarverðlaun DV 1989, viðurkenningu STEFs fyrir kynningu og flutning á verkum Jóns Leifs 1991; hún var sæmd hinni íslensku fálkaorðu 1990 og árið 2007 hlaut Rut einnig riddarakross franska ríkisins fyrir kynningu og flutning á franskri tónlist á Íslandi.
|
2.6.2010 |
Almennt efni
| kmjoll
Úthlutun úr hljómdiskasjóði 2010
Á aðalfundi félagsins 27. maí síðastliðinn var afhentur einn styrkur úr Hljómdiskasjóði að upphæð 200.000 kr. Hann hlaut: Ástríður Alda Sigurðardóttir til að hljóðrita píanóverk eftir Chopin.
|
2.6.2010 |
Almennt efni
| kmjoll
Styrkveitingar til landsbyggðartónleika 2011
Á aðalfundi félagsins 27. maí síðastliðinn var úthlutað styrkjum til félagsmanna F.Í.T. og FÍH til tónleikahalds á landsbyggðinni 2011. Alls bárust 29 umsóknir sem komu til umsagnar úthlutunarnefndar. Átta tónlistarmenn og hópar hlutu styrk til landsbyggðartónleika 2011: Einleikur: Ástríður Alda Sigurðardóttir, píanó Edda Erlendsdóttir, píanó Dúó: Þórunn Ósk Marinósdóttir, víóla, Kristinn Örn Kristinsson, píanó Ari Þór Vilhjálmsson, fiðla, Sigurgeir Agnarsson, selló Tríó Trílógía: Hallveig Rúnarsdóttir, sópran, Sólveig Samúelsdóttir, sópran, Hrönn Þráinsdóttir, píanó Vadim Fedorov, harmonikka, Leifur Gunnarsson, kontrabassi, Gunnar Hilmarsson, gítar Kvintett: Davíð Ólafsson, bassi, Kjartan Óskarsson, klarinett, Emil Friðfinnsson, horn, Brjánn Ingason, fagott, Snorri Örn Snorrason, gítar Sextett: Voces Thules: Eggert Pálsson, Einar Jóhannesson, Eiríkur Hreinn Helgason, Guðlaugur Viktorsson, Sigurður Halldórsson, Arngerður María Árnadóttir orgel
|
2.6.2010 |
Almennt efni
| kmjoll
Fréttir af aðalfundi 2010
Aðalfundur FÍT var haldinn í Vestursal FÍH í Rauðagerði 27 þann 27. maí síðastliðinn. Fundurinn hófst kl. 18:30 með útnefningu á nýjum heiðursfélaga, Rutar Ingólfsdóttur fiðluleikara. Þá var úthlutað styrkjum úr Hljómdiskasjóði félagsins og til Tónleika á landsbyggðinni 2010. Venjuleg aðaflundarstörf hófust kl. 19:30. Fundarstjóri var Anna Sigríður Helgadóttir, fundarritari Margrét Bóasdóttir og fundarmenn 11 samtals að stjórn meðtalinni. Aðalfundargerð frá 2009 var borin upp til samþykktar en þá var komið að skýrslu formanns. Kristín Mjöll Jakobsdóttir rakti helstu störf stjórnar á árinu og sagði fá því sem er á döfinni á næstunni. Látinna félaga á síðasta ári var minnst með einnar mínútu þögn. Reikningar félagsins voru bornir upp og samþykktir, 6 nýjum félagsmönnum var veitt innganga. Þeir eru: Víkingur Heiðar Ólafsson, Sólveig Samúelsdóttir, Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, Herdís Anna Jónasdóttir, Eyþór Ingi Jónsson og Ásdís Hildur Runólfsdóttir. Sitjandi stjórn gaf áfram kost á sér og var hún samþykkt einróma. Tveir nýir varastjórnarmenn voru kjörnir: Þórarinn Stefánsson og Anna Sigríður Helgadóttir en Daníel Þorsteinsson og Sólveig Anna Jónsdóttir gengu úr varastjórn. Skoðunarmenn reikninga voru endurkjörnir. Þá var samþykkt tillaga stjórnar um að stjórn fengi umboð til að velja fulltrúa félagsins í úthlutunarnefnd Launasjóðs tónlistarflytjenda. Vigdís Klara Aradóttir verkefnisstjórin landsbyggðartónleika flutti skýrslu. Kristín Mjöll hafði framsögu að umræðum um fjármál félagsins en um það spunnust nokkrar umræður. Tillaga stjórnar um hækkun félagsgjalda í 7.000 kr var samþykkt. Stjórn var falið að ljúka ályktun til fjölmiðla samkvæmt tillögu aðalfundar. Aðalfundargerð, skýrsla formanns og samþykkt ályktun verða sendar félagsmönnum í tölvupósti á næstunni.
|
26.5.2010 |
Almennt efni
| kmjoll
Aðalfundarboð 2010 - 27. maí kl. 18:30
Aðalfundur félagsins verður haldinn fimmtudaginn 27. maí 2010, í Vestursal FÍH, Rauðagerði 27. Fundurinn hefst kl. 18:30 með úthlutun styrkja úr Hljómdiskasjóði og til Landsbyggðartónleika. Kjörinn verður nýr heiðursfélagi. Hefðbundin aðalfundarstörf hefjast kl. 19:15. Fyrir liggur tillaga um hækkun félagsgjalda í 7.000 kr. en farið verður sérstaklega yfir rekstrarstöðu félagsins og kallað eftir umræðum. Þá verður sagt frá þeim atburðum sem eru á döfinni í júní í tilefni af 70 ára afmæli félagsins. Minnt er á að nýir félagar eru einungis teknir inn á aðalfundi. Umsókn um aðild þarf að berast stjórn fyrir þann tíma. Minnið áhugasama á að sækja um aðild fyrir fundinn. Umsóknareyðublöð eru á heimasíðu félagsins; www.fiston.is Stjórnarmenn í aðalstjórn F.Í.T. munu áfram gefa kost á sér til stjórnarsetu. Laus sæti eru í varastjórn. Þeir félagsmenn sem áhuga hafa á stjórnarstörfum láti formann vinsamlegast vita af framboði sínu. Félagsmenn eru hvattir til góðrar þátttöku! Með kveðju, Stjórnin
Dagsskrá aðalfundar:
a: Fundargerð síðasta aðalfundar borin upp til samþykktar. b: Skýrsla formanns. c: Lagðir fram til samþykktar endurskoðaðir félagsreikningar fyrir síðasta reikningsár. d: Tillögur til lagabreytinga ef fram eru bornar. e: Umsóknir nýrra félaga. f: Kosin stjórn, varastjórn og skoðunarmenn reikninga. g: Önnur mál.
• Tilnefningar í úthlutunarnefnd Launasjóðs tónlistarflytjenda • Umræður um rekstrarafkomu F.Í.T. • Tillaga um hækkun félagsgjalda í 7.000 kr • Skýrsla verkefnisstjóra landsbyggðartónleika
|
28.4.2010 |
Almennt efni
| kmjoll
Vilt ÞÚ læra að SPILA TANGÓ?
Suðræn tangósveifla undir handleiðslu Olivier Manoury bandóneonleikara er námskeið á vegum Félags íslenskra tónlistarmanna haldið í Tónlistarskólanum í Reykjavík dagana 9. – 12. júní 2010. Námskeiðið er sérstaklega ætlað strengja-, píanó- og söngnemendum á framhaldsstigi. Einnig geta starfandi tónlistarmenn sótt um. Söngvarar þurfa að geta sungið á spænsku. Kennt verður miðvikudag, fimmtudag og föstudag dagana 9.-11. júní frá kl. 9:30 – 16:00. Tónleikar þátttakenda verða í lok föstudags. Námskeiðsgjald er 12.000 kr - umsóknareyðublað
Námskeiðið eru hluti af norrænni tónlistarhátíð ,,Suður mætir Norðri” sem fram fer í Norræna húsinu dagana 10.-12. júní fyrir tilstilli Félags íslenskra tónlistarmanna í samvinnu við norræn einleikarafélög. Meðfram námskeiðinu verður haldin tangósmiðja þar sem norrænir gestir hátíðarinnar leiða saman hesta sína með Olivier Manoury og félögum hans í tangókvartettinum. Sérstakir hátíðartónleikar verða í Norræna hússinu laugardaginn 12. júní kl. 16:00. Þar verður leikin tangótónlist undir stjórn Olivier Manoury. Með honum koma fram þátttakendur tangósmiðjunnar og nemendur af námskeiðinu.
|
26.4.2010 |
Almennt efni
| kmjoll
Listagolf 23. maí
Fyrsta golfmót listamanna á Íslandi verður haldið á hvítasunnudag, 23. maí nk. á Nesvelli á Seltjarnarnesi. Mótið er opið öllum félögum í fagfélögum listamanna sem aðild eiga að Bandalagi íslenskra listamanna. Mótið er punktamót og verða veitt verðlaun fyrir þrjú efstu sætin. Þá verða bílar í verðlaun fyrir að vera næst holu á par 3 brautum. Skráning fer fram á heimasíðu FÍH (fih.is) og verður opnað fyrir skráningu laugardaginn 1.maí kl 12 á hádegi. Fjöldi þátttakenda er takmarkaður og því er áhugasömum bent á að skrá sig strax. Mótið hefst kl. 9:00 og verður ræst út á öllum teigum samtímis. Mótsgjald kr 3.500 og innifalið í því gjaldi er súpa og brauð. Í mótslok verður verðlaunaafhending með skemmtiatriðum og öðrum listrænum uppákomum. Undirbúningsnefnd, Arnar Jónsson FÍL Björn B Björnsson FK Björn Th Árnason FÍH
|
26.4.2010 |
Almennt efni
| kmjoll
Fræðslukvöld ÚTÓN um samninga og samningagerð 4. maí
Fræðslukvöld um samninga og samningagerð verður haldið þriðjudaginn 4. maí frá kl. 19.30-22.00 í Norræna húsinu. Leitast verður við að svara spurningum á borð við: Hver munurinn á dreifingar-, framsals- og upptökusamningi? Hvaða fjárfestingum geta tónlistarmenn leitað eftir bæði heima og erlendis? Hvað ber að hafa í huga við samningagerð? Hver eru helstu hugtök sem þarf að þekkja í samningagerð? Hver eru undirstöðuatriðin í samningatækni? Meðal mælenda eru Eiður Arnarson, forstöðumaður tónlistardeildar Senu, Tómas Þorvaldsson hæstaréttarlögmaður og Silja Bára Ómarsdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur. Námskeiðsgjald er 4000 krónur. Innifalið í námskeiðsgjaldi eru námskeiðsgögn og létt hressing. Nauðsynlegt er að skrá sig fyrirfram. Námskeiðsgjald er 2500 krónur fyrir félagsmenn FTT, TÍ, FÍH, FÍT og FHF. Skráning er hjá thorey@uflutningsrad.is og allar nánari upplýsingar hjá kamilla@icelandmusic.is eða í síma 511 4000. Kamilla Ingibergsdóttir Project Manager Mobile: +354 863 3499
|
26.4.2010 |
Almennt efni
| kmjoll
Opinn fræðslu- og spjallfundur tónlistargeirans 27. apríl
OPINN FRÆÐSLU - OG SPJALLFUNDUR n.k. þriðjudagskvöld 27.apríl kl. 20:00 á Kornhlöðuloftinu Bankastræti 2 (aftan við Lækjarbrekku á 2. hæð) Til umræðu verður: 1) Hið nýja fyrirkomulag listamannalauna. Fulltrúar úr stjórn listamannalauna og úthlutunarnefnda tónskáldasjóðs og tónflytjendasjóðs mæta, ræða tilhögun, veita tilsögn og taka á móti ábendingum um það sem betur mætti fara. 2) Fyrirkomulag og flokkar ÍTV, íslensku tónlistarverðlaunanna. Stjórn ÍTV mætir og tekur þátt í umræðum og veitir móttöku góðum ábendingum. 3) Önnur mál er varða tónlistargeirann. Aðgangur ókeypis og öllum opinn. F.h. FTT og aðstandenda fundarins, Snorri Helgason
|
26.4.2010 |
Almennt efni
| kmjoll
Umsóknarfrestur vegna NordSol tónleika í Reykjavík 2. maí
Stjórn F.Í.T auglýsir eftir tónlistaratriðum á tvenna norræna kammertónleika, NordSol tónleika, sem haldnir verða í tengslum við ársfund Nordisk Solistråd í Reykjavík dagana 10.-12. júní 2010. Umsækjendur skulu vera félagsmenn F.Í.T. og skuldlausir við félagið. Tónleikarnir verða í Norræna húsinu 10. og 11. júní næstkomandi. Á tónleikunum munu koma fram fulltrúar frá fimm löndum, Íslandi, Danmörku, Noregi, Finnlandi og Færeyjum. Auglýst er eftir tveimur mismunandi efnisskrám / flytjendum til að koma fram annars vegar á NordSol tónleikum 10. júní og hins vegar á NordSol tónleikum 11. júní. Hvor efnisskrá skal vera að hámarki um 15 mínútur að lengd. Æskilegt er að efnisskráin innihaldi minnst eitt íslenskt tónverk. Umsóknarfrestur er til miðnættis sunnudaginn 2. maí. Umsóknir skal senda á fiston@fih.is. Móttaka umsókna verður staðfest. Með kveðju, Stjórnin
|
13.4.2010 |
Almennt efni
| kmjoll
Getur þín sköpun skipt sköpum? - Fundur um listir 24. apríl
Laugardaginn 24. april n.k. mun BÍL, Bandalag íslenskra listamanna, efna til fundar þar sem rætt verður um eðli og tilgang lista á skemmtilegan og skapandi hátt. Fundurinn er æltaður listafólki úr öllum listgreinum, höfundum hugverka ásamt fræðimönnum og öðrum þeim sem starfa innan hinna skapandi greina.
Fundarformið verður áþekkt Þjóðfundinum, sem haldinn var í Laugardalshöll í nóvember sl. Funarmönnum verður skipt niður á borð með ca. 9 fundarmönnum og einum borðstjóra, sem tryggir virkni allra í hópnum.
Fundurinn verður vonandi einskonar sjálfsskoðun, þar sem þátttakendur ræða við kollega úr ýmsum áttum um tilgang lista, hvert hlutverk listamanna sé og hvort listir og menning skipti máli við endurreisn íslensks samfélags. Fundinum er ætlað að efna til samræðu um listir milli listafólks, tengja saman sjónarmið og innsæi úr ólíkum áttum og skapa með því jarðveg fyrir nýjar hugmyndir og möguleika. Þar að auki er líklegt að hugmyndirnar sem fæðast og verða ræddar á fundinum skili sér inn í umræðu um listir á ýmsum vettvangi, meðal annars á fyrirhugaðri ráðstefnu Mennta- og menningarmálaráðuneytisins, Menningarlandið 2010 - Mótun menningarstefnu, sem haldin verður viku síðar eða 30. apríl. Þannig geta listamenn lagt sitt af mörkum, sem hlýtur að teljast afar brýnt, við mótun þeirrar menningarstefnu sem við teljum æskilega á Íslandi.
Fundurinn verður haldinn í sal FÍH við Rauðagerði 27, 108 Reykjavík, kl. 10:00 - 15:00 - húsið opnar kl. 9:30 og er þátttakendum að kostnaðarlausu. Boðið verður upp á hádegishressingu. Væntanlegir þátttakendur eru beðnir að senda póst á netfangið bil@bil.is með upplýsingum um nafn, netfang, síma og listgreinina sem þau starfa við. Staðfesting óskast fyrir dagslok mánudaginn 19. apríl.
Með góðri kveðju, f.h. undirbúningshóps og stjórnar Bandalags íslenskra listamanna Kolbrún Halldórsdóttir, forseti BÍL
|
10.4.2010 |
Almennt efni
| kmjoll
Stórafmæli Vigdísar Finnbogadóttur - 15. apríl
Vigdís Finnbogadóttir fv. forseti Íslands stendur á tímamótum á árinu 2010 því að auk stórafmælis hennar 15. apríl nk. verða liðin 30 ár frá þeim sögulega atburði þegar Íslendingar, fyrstir þjóða, kusu konu til forseta í lýðræðislegri kosningu hinn 29. júní 1980. Í tilefni af stórafmæli Vigdísar hinn 15. apríl efnir Háskóli Íslands, ríkisstjórnin og Reykjavíkurborg í samvinnu við samtök sem tengjast hugðarefnum og starfsvettvangi Vigdísar til hátíðardagskrár í Háskólabíói á afmælisdaginn kl. 16.30-18.00 sem ber yfirskriftina: Þú siglir alltaf til sama lands. Afmæliskaffi 15:30-16:30 og hátíðardagskrá kl 16:30–18:00 í Háskólabíói 15. apríl
Hátíðardagskrá í Háskólabíói 15. apríl kl. 16:30–18:00:
Dagskráin er öllum opin. Húsið verður opnað kl. 15:30 og eru gestir hvattir til að mæta stundvíslega þar sem sent verður beint út í sjónvarpi og útvarpi.
Kristín Ingólfsdóttir rektor Háskóla Íslands, setur dagskrána kl. 16:30 og í kjölfarið munu Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri ávarpa afmælisbarnið. Háskóli Íslands, stjórnvöld og Reykjavíkurborg standa að afmælishátíðinni. Þá tekur við dagskrá í myndum, tali og tónum undir listrænni stjórn Kolbrúnar Halldórsdóttur. Dagskráin er afmælisgjöf til Vigdísar frá listamönnum og þeim samtökum sem Vigdís hefur unnið hvað mest með. Dagskránni lýkur laust fyrir kl. 18 með ávarpi afmælisbarnsins. Heiðrum Vigdísi á þessum merkisdegi hennar með því að fjölmenna á afmælishátíðina. Nánari upplýsingar á vef Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur www.vigdis.hi.is og hjá svanhvit@hi.is
Varðveisla framtíðar: Sjálfbærni tungumáls, menningar og náttúru Alþjóðleg vísindaráðstefna 15.-17. apríl
Setningarathöfn: í Hátíðarsal Háskóla Íslands kl. 18:30–19:30
Martti Ahtisaari, fv. forseti Finnlands og friðarverðlaunahafi Nóbels flytur fyrirlestur við opnun ráðstefnunnar sem Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur gengst fyrir. Á ráðstefnunni verður fjallað um bókmenntir, tungumál, menningu og náttúru frá ýmsum sjónarhornum. Lykilfyrirlesarar verða auk Martti Ahtisaari: - Irina Bokova, framkvæmdastjóri UNESCO - Bernard Comrie, forstöðumaður málvísindadeildar Max Planck stofnunarinnar í Leipzig - Claire Kramsch, prófessor og forstöðumaður tungumálamiðstöðvar Berkeley háskóla í Kaliforníu - Páll Skúlason, prófessor og fyrrv. rektor Háskóla Íslands.
Ráðstefnunni lýkur með fyrirlestri, Irinu Bokova laugardaginn 17. apríl kl. 18:00-18:40 í Hátíðarsal Háskóla Íslands. Skráning og nánari upplýsingar um málstofur og aðra dagskrárliði er að finna á vef ráðstefnunnar.
|
10.4.2010 |
Almennt efni
| kmjoll
Menningarlandið 2010 - 30. apríl á Loftleiðum
Mennta- og menningarmálaráðuneyti boðar til menningarþings undir yfirskriftinni Menningarlandið 2010 – Mótun menningarstefnu, á Hótel Loftleiðum, föstudaginn 30. apríl 2010 kl. 12:30-16:45. Á þinginu verður kynnt greining á núverandi menningarstefnu á sviði lista, menningararfs, safna, fjölmiðla og æskulýðs- og íþróttamála. Tilgangur þingsins er að fá viðbrögð við fyrirliggjandi greiningu og að fá fram hugmyndir sem gætu nýst í áframhaldandi vinnu við mótun menningarstefnu til framtíðar. Einnig verður kynnt sóknaráætlun stjórnvalda í menningarmálum og nýleg menningarneyslukönnun. Nánari upplýsingar um ráðstefnuna og um skráningu er á vef mennta- og menningarmálaráðuneytis: http://www.menntamalaraduneyti.is/menningarlandid2010/
|
8.4.2010 |
Almennt efni
| kmjoll
Auglýsing um styrki úr Hljómdiskasjóði FÍT 2010 - 2.maí
Félagið auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki úr Hljómdiskasjóði félagsins. Umsóknarfrestur er til miðnættis sunnudaginn 2.maí 2010. Umsóknareyðublöð og úthlutunarreglur eru á heimasíðu félagsins www.fiston.is undir "Hljómdiskasjóður". http://www.fiston.is/default.aspx?PageID=78 Úthlutun fer fram á aðalfundi félagsins 19. maí næstkomandi. Í ár verður veittur einn styrkur að upphæð kr. 200 þúsund. Minnt er á að allir flytjendur þurfa að vera félagsmenn og að skilvís greiðsla árgjalds er skilyrði fyrir því að umsókn sé tekin til umfjöllunar. Stjórnin.
|
8.4.2010 |
Almennt efni
| kmjoll
Auglýsing um styrki til landsbyggðartónleika - 2. maí
Auglýst er eftir umsóknum um styrki til tónleikahalds á landsbyggðinni árið 2011, verkefni á vegum F.Í.T. og FÍH. Samkvæmt markmiðum verkefnisins er óskað eftir • efnisskrá með sígildri tónlist EÐA • efnisskrá með blöndu / samtvinnuðu efni af sígildri tónlist og öðrum tónlistarstefnum Efnisskrár sem ekki eru í samræmi við ofangreind markmið koma ekki til álita. Æskilegt er að flytjendur gefi kost á samstarfi við tónlistarskóla á tónleikastað, sé þess óskað, t.d. með námskeiðahaldi eða samleik með tónlistarnemum á tónleikunum. Umsækjendur geta verið einleikarar, söngvarar eða smærri tónlistarhópar. Skilyrði er að allir umsækjendur séu meðlimir í öðru hvoru félaginu, F.Í.T. eða FÍH. Skilvís greiðsla félagsgjalda er skilyrði fyrir því að umsókn sé tekin til umfjöllunar. Hver styrkur er ætlaður til þriggja tónleika í samstarfi við tónleikahaldara á landsbyggðinni. Leitast er við að útdeila öllum styrkþegum þremur tónleikum. Þóknun er greidd til helminga af verkefninu og tónleikahaldara. Ferðakostnaður og uppihald greiðist af tónleikahaldara. Verkefnisstjóri annast skipulagningu og samskipti við samstarfsaðila. Starfsárið er almanaksárið frá janúar til desember. Þóknun fyrir tónleika er: • 70.000 kr. f. eina einleikstónleika • 90.000 kr. f. eina dúótónleika (45x2) • 105.000 kr. f. eina tríótónleika (35x3) • 140.000 kr. f. eina kvartetttónleika (35x4) • 150.000 kr. f. eina kvintetttónleika (30x5) • Þóknun til stærri hópa er 30 þús. kr. á mann per tónleika Í umsókninni skulu koma fram nöfn umsækjenda, efnisskrá, stutt lýsing á verkefnavali til kynningar, heimilisfang, netfang og símanúmer ábyrgðarmanns umsóknar, og hvort umsækjendur hafa áður fengið styrk til þessa verkefnis. Einnig skal koma fram hvort umsækjandi(ur) gefur kost á tónleikum að sumarlagi (júlí-ágúst). Umsóknareyðublað má nálgast hér: http://www.fiston.is/default.aspx?PageID=126 Umsóknarfrestur vegna “Tónleika á landsbyggðinni” árið 2011 er til miðnættis sunnudaginn 2. maí næstkomandi. Umsóknir skulu sendar til F.Í.T. eða FÍH, Rauðagerði 27, 108 Reykjavík (póststimpill gildir), merktar “Umsókn um landsbyggðartónleika”, eða í tölvupósti á netfangið fiston@fih.is. Móttaka rafrænna umsókna verður staðfest. F.h. F.Í.T. og FÍH Vigdís Klara Aradóttir verkefnisstjóri lbtonleikar@fih.is
|
29.3.2010 |
Almennt efni
| kmjoll
Fræðslukvöld ÚTÓN um kynningarefni - 13. apríl
Fræðslukvöld um kynningarefni tónlistarmanna og hljómsveita verður haldið þriðjudaginn 13. apríl frá kl. 19.30-22.00 í Norræna húsinu. Leitast verður við að svara spurningum á borð við: 1) Hvað virkar best við gerð ferilskrár? 2) Hvernig er best að haga myndatökum/ljósmyndamálum hljómsveita? 3) Hvað virkar í vefsíðuútliti? 4) Hverjir eru kostir þess að ráða hönnuð til að stýra útliti á kynnningarefni? 5) Hvernig taka þeir sem skipta máli í bransanum inn upplýsingar? 6) Hvernig eflir maður tengslanetið og viðheldur því? Góðir gestir munu taka til máls þar á meðal Einar Örn Benediktsson, fyrrum Sykurmoli og eigandi Grapewire og Ámundi Sigurðsson, grafískur hönnuður, en þeir hafa um árabil unnið saman að ýmis konar kynningarefni. Auk þess mun Maríanna Friðjónsdóttir tala en hún starfaði lengi hjá Stöð 2 og DR í Danmörku. Fleiri nöfn munu bætast við þennan lista á næstu dögum. Námskeiðsgjald er 4000 krónur. Innifalið í námskeiðsgjaldi eru námskeiðsgögn og létt hressing. Nauðsynlegt er að skrá sig fyrirfram. Námskeiðsgjald er 2500 krónur fyrir félagsmenn FTT, TÍ, FÍH, FÍT og FHF. Skráning og allar nánari upplýsingar hjá kamilla@icelandmusic.is eða í síma 511 4000.
|
29.3.2010 |
Almennt efni
| kmjoll
Barnamenningarhátíð 19. - 25. apríl
Nú styttist óðum í fyrstu Barnamenningarhátíðina í Reykjavík en hún verður haldin dagana 19. – 25. apríl. Við höfum leitað eftir þátttöku ykkar og þökkum kærlega fyrir frábærar viðtökur. Fjölmargir aðilar koma að hátíðinni sem teygir sig vítt og breitt um borgina í öll hverfin og allt upp í Esjuhlíðar. Á botni Vesturbæjarlaugar bjóða leikskólabörn uppá myndlistarsýningu, Ferðafélag Íslands býður uppá gönguferðir, ratleiki og leikþætti í hlíðum Esjunnar. Á Listasafni Íslands verður framlag Myndlistaskólans margslunginn viðburður; Dyndilyndi – verði gjafa gagnstreymi. Fimmtán valinkunnir tónlistarmenn, myndlistarmenn, arkitektar, leikarar, hönnuðir og dansarar hafa gert verk sem öll eiga uppruna sinna í verkum nemenda Myndlistaskólans. Á Heimsdegi barna í Gerðubergi gefst börnum og fjölskyldum þeirra tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttum listsmiðjum. Þema hátíðarinnar er forvitni og verður forvitnilegt að taka þátt í Tilraunalandi í Norræna húsinu og fylgjast með vísindunum lifna við í Vatnsmýrinni. Í samvinnu við 8 grunnskóla vinnur Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús að verkefninu: FORVITNI - hver er ég? Nemendur vinna klippimyndaverk í anda Erró út frá þemanu og verða verkin sett saman í eina stóra veggmynd sem sýnd verður í Hafnarhúsinu. Fríkirkjuvegur 11 verður Ævintýrahöllin Barnamenningarhátíð hefur fengið til afnota hið fallega hús að Fríkirkjuvegi 11. Þar verður mikil starfsemi alla vikuna sem hátíðin stendur yfir, tónleikar og fjölbreytilegar smiðjur og - síðast en ekki síst - þar fá börn tækifæri til að halda myndlistarsýningar og kynna það sem þau eru að fást við. Þetta er aðeins brotabrot af því sem í boði verður. Enn er tækifæri til þess að taka þátt og senda inn dagskráratriði og biðjum við áhugasama um að hafa samband fyrir 26. mars við Guðríði Ingu Ingólfsdóttur, s. 590 1509 gudridur.inga.ingolfsdottir@reykjavik.is og Skúli Gautason, s. 590 1506 skuli.gautason@reykjavik.is Með góðum kveðjum, Skúli Gautason og Guðríður Inga Ingólfsdóttir, Höfuðborgarstofu www.barnamenningarhatid.is
Með kveðju - Best Regards, Guðríður Inga Ingólfsdóttir - Gurry Verkefnisstjóri viðburða - Project Manager for Events Höfuðborgarstofa - Visit Reykjavík _______________________________ Adalstræti 2 - 101 Reykjavik - Iceland www.visitreykjavik.is - gurry@visitreykjavik.is Phone: (+354) 590 1509- Fax: 590 1501 www.visitreykjavik.is www.reykjavik.is
|
29.3.2010 |
Almennt efni
| kmjoll
Auglýst eftir framkvæmdastjóra Iceland Airvawes - 8. apríl
Útflutningsskrifstofa íslenskar tónlistar auglýsir eftir verktaka til að taka að sér stöðu framkvæmdastjóra Iceland Airwaves tónlistarhátíðarinnar. Leitað er eftir einstaklingi með reynslu af rekstri og starfsmannahaldi. Þekking og reynsla af tónleikahaldi er nauðsynleg. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Um 50% starf er að ræða. Áhugasamir sendi inn ferilskrá og upplýsingar um af hverju þeir telja sig hæfa til að taka að sér verkefnið á icelandairwaves@icelandmusic.is í síðasta lagi á hádegi 8. apríl.
|
29.3.2010 |
Almennt efni
| kmjoll
Icelandair felur ÚTÓN framkvæmd Iceland Airwaves
Icelandair og Útflutningsskrifstofa íslenskrar tónlistar, ÚTÓN, undirrituðu í dag samstarfssamning um rekstur tónlistarhátíðarinnar Iceland Airwaves til næstu fimm ára. ÚTÓN hefur samhliða þessu gert samning um að taka við allri starfsemi sem snýr að rekstri hátíðarinnar af fyrri rekstraraðila, Hr. Örlygi. Jafnframt hefur Reykjavíkurborg lýst yfir vilja til að vera áfram helsti styrktaraðili hátíðarinnar. Um leið og Icelandair býður nýjan rekstraraðila velkominn til starfa þakkar félagið Hr. Örlygi og Þorsteini Stephensen, framkvæmdastjóra þess, fyrir samstarfið. Iceland Airwaves hefur sem kunnugt er unnið sér sess á undanförnum áratug sem stærsta og mikilvægasta tónlistarhátíð landsins fyrir framsækna tónlist. Hún hefur verið haldin árlega í október frá árinu 1999 og laðar að sér yfir 1800 tónlistaráhugamenn erlendis frá og þar af mikinn fjölda fjölmiðafólks. Tilgangur hátíðarinnar er að fjölga ferðamönnum til Íslands á haustin, utan hefðbundins ferðatíma, stuðla að menningarlegri fjölbreytni og efla íslenska tónlist, ásamt því að koma íslenskum tónlistarmönnum á framfæri erlendis og í erlendum fjölmiðlum. Icelandair er stofnandi og eigandi Iceland Airwaves hátíðarinnar, en ÚTÓN mun samkvæmt samningnum annast allan rekstur hennar. Reykjavíkurborg og Icelandair verða áfram aðalstyrktaraðilar hátíðarinnar. “Með þessum samningi er Icelandair að staðfesta þá sýn félagsins að ný íslensk tónlist sé einhver besta landkynning sem völ er á. Tónlistin fer yfir landamæri og nær með sínum hætti til ólíkra menningarsvæða og vekur athygli á landi og þjóð. Icelandair styrkir nú yngstu tónlistarmennina með því að vera bakhjarl Músíktilrauna, við stöndum á bak við Iceland Airwaves og auðveldum tónlistarmönnum síðan að koma fram erlendis með verkefninu Reykjavík Loftbrú, sem þúsundir hafa nýtt sér til að halda tónleika víðsvegar um heim á undanförnum árum”, segir Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair. Svanhildur Konráðsdóttir, menningar- og ferðamálastjóri Reykjavíkur kveðst fagna því að nú liggi fyrir samkomulag við ÚTÓN um framkvæmd hátíðarinnar. ,,Iceland Airwaves hátíðin hefur fyrir löngu sannað menningarlegt gildi sitt auk þess sem hún er afar mikilvægur farvegur fyrir alþjóðlega kynningu á Reykjavík sem spennandi og kraftmikilli tónlistarborg. Reykjavíkurborg hefur um árabil stutt dyggilega við bakið á hátíðinni enda hafa rannsóknir á efnahagslegum áhrifum Iceland Airwaves sýnt að hátíðin skilar þeim framlögum margfalt til baka. Næstu skref verða að útfæra samstarfssamning um hátíðina 2010.” “ÚTÓN er viðskipta- og markaðsskrifstofa fyrir íslenska tónlistargeirann í heild sinni. Iceland Airwaves er einn besti kynningarvettvangur sem íslensk tónlist á og því fer rekstur hátíðarinnar og starf skrifstofunnar vel saman. ÚTÓN tekur við hátíðinni í góðu samráði við fyrrverandi rekstraraðila og leggur áherslu á gott samstarf við tónlistargeirann á Íslandi með það að markmiði að Iceland Airwaves eflist sem einn af virtustu tónlistarviðburðum sinnar tegundar á alþjóðavettvangi. “ segir Anna Hildur Hildibrandsdóttir, framkvæmdastjóri Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar.
|
29.3.2010 |
Almennt efni
| kmjoll
Mastersnám í Listkennsludeild - 9. apríl
Listkennsludeild Listaháskóla Íslands er að ljúka sínu fyrsta starfsári en því tíunda sem kennsluréttindanám. Nú er opið fyrir umsóknir fyrir næsta skólaár fram til 9.apríl 2010 Námið er ætlað listamnönnum sem lokið hafa bakkalárnámi (BA) í tónlist, leiklist, myndlist, hönnun og arkitektúr, eða sambærilegu viðurkenndu námi. Það miðar að því að þjálfa listafólk til kennslu ásamt því að efla með því færni og fræðilegan grunn til að miðla þekkingu sinni á ólíkum vettvangi, og leiða listverkefni bæði innan skólakerfisins og utan þess. Í listkennsludeild eru tvær námsleiðir: Tveggja ára meistarnám í listkennslu og nú í síðasta sinn eins árs diplómanám til kennsluréttinda. Diplomanáminu verður að ljúka fyrir 1.júlí 2011 er í gildi taka ný lög um menntun kennara. Nánari upplýsingar um skipulag námsins og umsóknarferli er að finna á vef Listaháskólans, sjá: http://lhi.is/umsoknir/listkennsludeild/ Kær kveðja Kristín Valsdóttir Deildarforseti listkennsludeildar/dean of art education department Listaháskóli Íslands/Iceland Academy of the Arts Laugarnesvegur 91 105 Reykjavik kristin@lhi.is Sími +354 5202416
|
23.3.2010 |
Almennt efni
| kmjoll
Klassík í Vatnsmýrinni - "Gestir frá Ítalíu"
Miðvikudagskvöldið 24. mars kl. 20:00 fer kammertónleikaröð Félags íslenskra tónlistarmanna í samvinnu við Norræna húsið af stað öðru sinni. Flytjendur á þessum fyrstu tónleikum starfsársins verða ítölsku tónlistarmennirnir Natalia Benedetti klarínettuleikari og Sebastiano Brusco píanóleikari. Þau munu flytja efnisskrá með vinsælum meistaraverkum fyrir klarínett og píanó eftir evrópsk og bandarísk tónskáld: Fantasíur op. 73 eftir Robert Schumann. Sónötur eftir Francis Poulenc, Camille Saint- Saëns og Leonard Bernstein. Sebastiano Brusco og Natalia Benedetti hafa starfað saman um nokkurt skeið á alþjóðlegum vettvangi.
Sebastiano Brusco er virtur píanóleikari í heimalandi sínu og kemur reglulega fram á tónleikum víða um heim. Hann hefur unnið til alþjóðlegra verðlauna, komið fram sem einleikari með hljómsveitum, t.d. Sinfóníuhljómsveitinni í Mílano og I Solisti Veneti. Sebastiano hefur frumflutt verk eftir Milhaud, Gould, Tossati o.fl. Hann er meðlimur Bernini kvartettsins í Róm og vinnur náið með rússneska fiðluleikaranum Vadim Brodsky. Sebastiano er listrænn stjórnandi tónleikaraðarinnar Concerti nella Sagrestia del Borromini í Róm.
Natalia Benedetti hefur unnið til fjölda verðlauna fyrir leik sinn í heimalandi sínu en hún lauk námi í klarínettleik með hæstu einkunn árið 2005 frá Tónlistarháskólanum í Perugia. Henni hefur verið boðið að koma fram á tónlistarhátíðum svo sem Feneyjatvíæringnum, Spoleto og Edinborgarhátíðinni. Á Elliot Carter hátíðinni í Feneyjum 2008 lék hún m.a. með Ursulu og Heinz Holliger. Natalía er listrænn stjórnandi tónlistarhátíðarinnar í Bevagna. Aðgangseyrir á tónleikana er 1.500 kr og er sérstaklega hvatt til aðsóknar ungs fólks með því að veita öllum undir 21 árs aldri ókeypis aðgang að tónleikunum.
Sjá nánar um tónleikaröðina og efnisskrá
|
23.3.2010 |
Almennt efni
| kmjoll
Kjarvalsstofa í París - Umsóknarfrestur 21. apríl
Kjarvalsstofa í París er stúdíóíbúð með vinnuaðstöðu, sem ætluð er til dvalar fyrir listamenn. Stofan er í eigu Reykjavíkurborgar, mennta- og menningarmálaráðuneytisins og Seðlabanka Íslands og er staðsett í miðborg Parísar, skammt frá Notre Dame dómkirkjunni. Þeir sem í stofunni dvelja greiða dvalargjöld sem ákveðin eru af stjórn Cité Internationale des Arts er rekur stofuna og miðast við kostnað af rekstri hennar. Á árinu 2010 verða þau 370 evrur á mánuði fyrir einstakling en 470 evrur á mánuði fyrir tvo. Úthlutun er lágmark tveir mánuðir í senn en vegna fjölda umsókna undanfarin ár hefur dvalartími að jafnaði verið 2 mánuðir. Dvalargestir skuldbinda sig til að hlíta reglum Cité Internationale des Arts varðandi afnot af húsnæði og vinnuaðstöðu, þ.á m. er ætlast til að þeir nýti stofuna allan úthlutunartíma sinn. Auglýst er eftir umsóknum um afnot Kjarvalsstofu fyrir tímabilið 1. ágúst 2010 til 31. júlí 2011. Umsóknareyðublöð ásamt reglum um afnot af Kjarvalsstofu má finna á www.reykjavik.is/menningogferdamal og Rafrænu Reykjavík. Umsóknir, með lýsingu á því verkefni sem umsækjandi hyggst vinna að, skulu stílaðar á stjórnarnefnd Kjarvalsstofu, Menningar- og ferðamálasviði Reykjavíkurborgar, Ingólfsnausti, Vesturgötu 1, 101 Reykjavík. Ætlast er til að umsækjendur skili inn stuttri greinargerð um afrakstur dvalarinnar. Umsóknir skulu berast í síðasta lagi miðvikudaginn 21. apríl 2010. Stjórnarnefnd Kjarvalsstofu
|
23.3.2010 |
Almennt efni
| kmjoll
Fræðslustyrkir ÚTÓN og Landsbankans - frestur til 26. mars
ÚTÓN og Landsbankinn veita fræðslustyrki til þeirra sem áhuga hafa á að mennta sig í netmarkaðssetningu á tónlist. Landsbankinn er bakhjarl fræðslustarfs ÚTÓN og styrkveitingar þessar eru liður í því samstarfi. Þetta er í fyrsta skipti sem styrkir af þessu tagi eru veittir en vonast er eftir að framhald geti orðið á næstu árum. Landsbankinn styrkir einnig íslenska heimasíðu ÚTÓN sem nú er í smíðum og á að auðvelda aðgang að upplýsingum um tónlistarviðskipti. Í boði eru: Fjórir 50.000 króna styrkir til að taka þátt í "Masterclass" námskeiði um markaðssetningu tónlistar á netinu í London 11. maí Sex 50.000 króna styrkir til að taka þátt í níu vikna námskeiði hjá Ariel Hyatt um markaðssetningu á netinu með vinnusmiðju í Danmörku 21. maí Fyrir "Masterclass" þarf fólk að hafa reynslu af markaðssetningu á tónlistarútgáfum eða viðburðum til að teljast styrkhæfir. Fyrir Ariel Hyatt námskeiðið geta tónlistarmenn og umboðsmenn sótt um styrki. Námskeiðið hentar bæði þeim sem eru að byrja á netmarkaðssetningu og eins þeim sem hafa þegar sett upp samfélagssíður og nýtt sér netið í kynningarskyni. Umsóknir þurfa að innihalda upplýsingar um bakgrunn umsækjanda og ágrip af reynslu í markaðssetningu tónlistar á netinu. Áhugasamir sendi fyrirspurnir og umsóknir til Kamillu Ingibergsdóttur, kamilla@icelandmusic.is Umsóknarfrestur rennur út á hádegi föstudaginn 26. mars.
|
23.3.2010 |
Almennt efni
| kmjoll
Námskeið fyrir lengra komna - 11. maí í London
Vakin er athygli á að skráning er hafin á námskeið í stafrænni markaðssetningu á tónlist fyrir lengra komna sem haldið verður 11. maí í London. Námskeiðið er hluti af NOMEX (Nordic Music Export) fræðsluprógrammi og er haldið í samstarfi við Music Ally (www.musically.com) og mætti hugsa sem framhaldsnámskeið níu vikna námskeiðsins sem skráning á er einnig hafin. Námskeiðið endar með "networking" kvöldi þar sem þátttakendur námskeiðsins fá tækifæri á að hitta og deila reynslu sinni með bransafólki í London. ÚTÓN mun veita tvo ferðastyrki til að komast á námskeiðið. Digital Music Marketing course in London – registration has started Digital Music Marketing Masterclass, London, 11 May 2010, 9.30-late "Anyone's digital potential can be unlocked by these guys, if ever a course can be life-changing, this is it!" Chris Cowey, Ex Top of the Pops Producer Registration has started for a NOMEX (Nordic Music Export) one-day masterclass in digital music marketing in collaboration with Music Ally in London (www.musically.com). Music Ally is responsible for high quality training for people from both indie and major labels as well as publishing companies, management companies and other music and media related companies in the UK. The masterclass, designed for the Nordics, will take place at 1-5 Exchange Court, Maiden Lane, Covent Garden on May 11th and is part of the NOMEX educational programme. The course fee is 350 GBP, which includes a 30% discount from the normal price, plus an after event networking drinks session with other specially invited guests The course is aimed at music marketing professionals and is designed to meet the needs of executives working within labels, music publishing companies, artist management, DIY artists, PR firms and other music marketing related jobs.. .. The course has a limit of participants. For more information and to register contact kamilla@icelandmusic.is. "Just wanted to send a quick note to say how fantastic yesterday's course was. The tutors were digital geniuses - am already putting www.tweetforatrack.com into action!" Amy Samson, Solar Management Agenda draft: - Introductions and objectives setting - Warm up exercise: Digital jargon-buster session looking at some of most common digital marketing terminology - Managing the Fanbase Part One: building your website at little to no cost and how to manage your fanbase (tools and services) - How-to guides: a brief overview of how to get the most out of Google, Facebook and Twitter - Managing the Fanbase Part Two: the basic principles of CRM and an overview of how to get the most out of email, mailing and Customer Relationship Management (CRM) tools - Inspirational campaigns from music and beyond - Q&A with the Music Ally team
|
17.3.2010 |
Almennt efni
| kmjoll
Til hamingju með daginn!!! - F.Í.T. 70 ára í dag
Félag íslenskra tónlistarmanna var stofnað 17. mars 1940 af nokkrum valinkunnum tónlistarmönnum og er þvi 70 ára í dag. Í tilefni afmælisársins er ýmislegt á döfinni hjá félaginu. Ársfundur Nordisk solistråd verður haldinn í Reykjavík dagana 10.-12. júní en á sama tíma stendur F.Í.T. fyrir norrænni tónlistarhátíð "Suður mætir Norðri" í Norræna húsinu með styrk frá Norrænu menningargáttinni. Einleikarar frá Norðurlöndum taka þátt í NordSol tónleikum og tangósmiðju undir leiðsögn Oliviers Manoury sem einnig heldur námskeið fyrir langt komna nemendur. Félagsmönnum verður boðið til sérstakrar hátíðarmótttöku á þessum tíma. Við fáum nýtt útlit á heimasíðuna í tengslum við afmælið og hátíðina. Núverandi stjórn hefur dreymt um að félagið eignist eigið lógó en því miður verður ekki séð í bili að fjárhagslegt ráðrúm gefist til þess.
Í næstu viku hefst annað starfsár tónleikaraðarinnar Klassík í Vatnsmýrinni í Norræna húsinu. Miðvikudagskvöldið 24. mars kl. 20:00 munu ítölsku tónlistarmennirnir Natalia Benedetti klarínettuleikari og Sebastiano Brusco píanóleikari koma fram á fyrstu tónleikum raðarinnar. Í tilefni afmælisins er félagsmönnum boðið til móttöku með léttum vínveitingum eftir tónleikana.
|
17.3.2010 |
Almennt efni
| kmjoll
Námskeið í markaðssetningu á netinu fyrir tónlistarfólk
ÚTÓN og NOMEX (Nordic Music Export) kynna níu vikna netnámskeið um kynningarefni og markaðssetningu á netinu. Námskeiðið hefst 3. maí og lýkur með tveggja mánaða kynningarátaki á netinu. Það er sérsniðið fyrir tónlistarfólk og er í umsjón fjölmiðlaplöggarans Ariel Hyatt. Hún hefur víðtæka reynslu af markaðssetingu á netinu og hefur á síðustu 13 árum verið fulltrúi yfir 1400 tónlistarmanna. „Ég mæli sterklega með þessu námskeiði.“ -Sunna Gunnlaugs „Ég hef sjaldan verið jafn innblásinn og eftir masterclass tímann og skrifaði niður heila blaðsíðu af ýmsum markaðssetningar- og útgáfuhugmyndum.“ -Ólafur Arnalds Á námskeiðinu verður leitast við að svara eftirfarandi spurningum: Samfélagssíður/fjölmiðlun – Facebook, Twitter, o.s.frv. - hvað er það og hvernig nýtast þær við kynningu verkefna? Hvernig er best að safna aðdáendum á netinu og halda utan um póstlista? Hvernig byggir þú upp og treystir samband þitt við aðdáendur? Hvernig styrkir þú viðskiptamódel þitt og selur í gegnum netið? Ariel sendir út verkefni vikulega á sérstakri lokaðri vefsíðu. Þeir sem eru þátttakendur geta haft samband við Ariel í gegnum sérstakt blogg til að miðla reynslu og leita skýringa. Í þriðju viku námskeiðsins, þann 21. maí, verður síðan haldin vinnusmiðja með Ariel á SPOT tónlistarhátíðinni í Aarhus, Danmörku. ÚTÓN mun veita fjóra ferðastyrki í tengslum við vinnusmiðjuna í Danmörku. Námskeiðið er fyrir tónlistarmenn, tónskáld, hljómsveitir, tónlistarverkefni, tónleikahátíðir, umboðsmenn, eigendur útgáfufyrirtækja, markaðsfólk og allt annað bransafólk. Sjá frekari upplýsingar í viðhengi á ensku. Námskeiðið og átakið kostar 53.500 krónur fyrir félagsmenn, FÍH, FÍT, FTT, TÍ, FHF og SHF, en 65.000 krónur fyrir aðra. Nánari upplýsingar og skráning eru hjá kamilla@icelandmusic.is og í síma 863 3499. Þess má einnig geta að tveggja mánaða markaðssetning á netinu kostar venjulega um 200.000 krónur sé leitað beint til PR fyrirtækja.
|
7.3.2010 |
Almennt efni
| kmjoll
Breytt dagskrá á Háskólatónleikum vorið 2010
Háskólatónleikar á miðvikudögum kl. 12:30 í Norræna húsinu. Dagskrá tónleika 10. mars hefur breyst. 10. mars VINDBJÖLLUR TÍMANS: NÝTT VERK EFTIR ÁSKEL MÁSSON ÁSKELL MÁSSON og DUO HARPWERK: FRANK AARNINK, slagverksleikari, og KATIE ELIZABETH BUCKLEY, hörpuleikari; flytja nýtt verk. 17. mars NÝTT ÍSLENSKT VERK FYRIR EINLEIKSFIÐLU UNA SVEINBJARNARDÓTTIR, fiðla, og TINNA ÞORSTEINSDÓTTIR, píanó, frumflytja verk eftir Unu Sveinbjarnardóttur og flytja verk eftir Alfred Schnittke. 24. mars NÝ ÍSLENSK OG ERLEND VERK PAMELA DE SENSI, flauta, og EGGERT PÁLSSON, slagverk, frumflytja ný verk eftir Elínu Gunnlaugsdóttur, Oliver Kentish og Antonio Cocomazzi og flytja í fyrsta skipti hérlendis verk eftir Anthony Holland. GUÐRÚN ÁSMUNDSDÓTTIR er sögumaður í verki Elínar.
|
4.3.2010 |
Almennt efni
| kmjoll
Klassík Vatnsmýrinni 2010 - val tónleikastjórnar
Stjórn tónleikaraðarinnar Klassík í Vatnsmýrinni hefur valið flytjendur fyrir einleiks- og kammertónleika árið 2010. Frábærar umsóknir bárust fyrir þá tvenna tónleika sem auglýstir voru. Fyrir valinu urðu umsóknir Laufeyjar Sigurðardóttur fiðluleikara og Elísabetar Waage hörpuleikara fyrir kammertónleika 22. september og Hlífar Sigurjónsdóttur fiðluleikara fyrir einleikstónleika 20. október.
|
1.3.2010 |
Almennt efni
| kmjoll
Fræðslukvöld ÚTÓN: höfundaréttartekjur, samningar 2. mars
Fræðslukvöld um höfundaréttartekjur og samninga verður haldið þriðjudaginn 2. mars frá kl. 19.30-22.00 í Norræna húsinu. Farið verður djúpt ofan í saumana á höfundaréttarsamningum (publishing) og hvað ber að hafa í huga við samningagerð. Skoðuð verða tengsl höfundaréttar og sölu tónlistar í kvikmyndum, sjónvarpi og auglýsingum. Leitast verður við að svara spurningum á borð við: Hvert er hlutverk höfundaréttarsamtaka? Hver er munurinn á að vera með "publishing" samning eða sjá um höfundaréttarmál sjálfur? Hvað eru flutningsréttindi og upptökuréttindi ("mekanísk" réttindi)? Hvaða mismunandi tekjustraumar eru af flutnings- og upptökurétti og hvernig berast höfundarréttartekjur eigendum sínum? Hvernig vinna höfunda og grenndarréttarsamtök saman? Góðir gestir munu deila sérfræðikunnáttu sinni þar á meðal Keith Harris, sem starfar hjá PPL (Innheimtusamtök flytjenda og framleiðenda í Bretlandi) og er umboðsmaður Stevie Wonder. Hann mun tala um mismunandi tekjustrauma af flutnings- og upptökurétti og hlutverk PPL í Bretlandi. Hann mun einnig fjalla um hvernig fólk getur varið réttindi sín og reynt að tryggjaað allar tekjur þeirra berist þeim, þ.m.t. flutningstekjur af því að spila inn á erlendum hljóðupptökum. Jenný Davíðsdóttir fjallar um hlutverk STEFs; úrvinnslu upplýsinga s.s. skráningu verka og réttinda sem berast frá höfundum, auk skráningu tónlistarskýrslna sem leggja grunn að úthlutun og þá úthlutun höfundaréttartekna frá Íslandi og erlendis frá. Hjördís Halldórsdóttir fjallar um helstu hugtökin í höfundarétti og eðli höfundaréttarsamninga. Ólafur Arnalds fjallar um reynslu sína af höfundarréttarsamningum og hvernig nýta má tækifæri í "publishing".Gunnar Guðmundson framkvæmdastjóri SFH gerir grein fyrir starfsemi SFH, sambands flytjenda og hljómplötuframleiðenda. Námskeiðsgjald er 2500 krónur fyrir félagsmenn FTT, TÍ, FÍH, FÍT og FHF og 4000 krónur fyrir aðra. Innifalið í námskeiðsgjaldi eru námskeiðsgögn og létt hressing. Nauðsynlegt er að skrá sig fyrirfram. Skráning fer fram hjá thorey@utflutningsrad.is og í síma 511 4000 og allar nánari upplýsingar fást hjá kamilla@icelandmusic.is. Kamilla Ingibergsdóttir Project Manager | Research and Development Mobile: +354 863 3499 | kamilla@icelandmusic.is
|
19.2.2010 |
Almennt efni
| kmjoll
Málþing um menningarstjórnun 25. febrúar
Er pólitísk og efnahagsleg stjórnun á menningu og listum slæm nauðsyn? - Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Norræna húsið standa fyrir málþingi um menningarstjórnun í Norræna húsinu 25. febrúar nk kl 13:00-16:00. Framsögumenn verða prófessorarnir Geir Vestheim og Per Mangset frá Háskólanum í Telemark í Noregi en þeir hafa sérhæft sig í menningarfræðum og skrifað fjölda bóka og greina á því sviði. Aðrir þátttakendur verða Ása Richardsdóttir, frkvstj. Íslenska dansflokksins, dr. Haukur F. Hannesson, fv. menningarlegur stjórnandi Sinfóníunnar í Gävle í Svíþjóð, stundakennari við Háskóla Íslands, Laufey Guðjónsdóttir, forstöðumaður Kvikmyndamiðstöðvar Íslands, og dr. Njörður Sigurjónsson, lektor við Háskólann á Bifröst. Málþingið fer fram á ensku. Allir velkomnir. Málþingið er stutt af Norræna menningarsjóðnum, Samstarfsnefnd um kennslu í Norðurlandafræðum erlendis, menntamálaráðuneytinu, Clara Lachmanns fond og Letterstedtska föreningen. Úlfar Bragason, rannsóknarprófessor Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum Stofu Sigurðar Nordals Þingholtsstræti 29 101 Reykjavík www.arnastofnun.is s. 562 6050
|
12.2.2010 |
Almennt efni
| kmjoll
Háskólatónleikar - dagskrá vorið 2010
Háskólatónleikar á miðvikudögum kl. 12:30 í Norræna húsinu 17. febrúar BACH, DEBUSSY, CHOPIN BIRNA HALLGRÍMSDÓTTIR leikur á píanó verk eftir eftir Johan Sebastian Bach, Claude Debussy og Frédéric Chopin. 3. mars ÍSLENSK SÓNATA FYRIR VÍÓLU OG PÍANÓ DAGNÝ BJÖRGVINSDÓTTIR, píanó, og HELGA ÞÓRARINSDÓTTIR, víóla, leika verk eftir Þórð Magnússon og Luise Adolpha Le Beau. 10. mars SÖNGLÖG VIÐ LJÓÐ EFTIR HALLDÓR LAXNESS SIGRÚN HJÁLMTÝSDÓTTIR, sópran, BRYNDÍS PÁLSDÓTTIR, fiðla, JÓHANN G. JÓHANNSSON, píanó, KJARTAN ÓSKARSSON, klarínetta/bassaklarínetta, PÉTUR GRÉTARSSON, víbrafónn, flytja sönglög eftir Jóhann G. Jóhannsson við ljóð eftir Halldór Laxness. Sum laganna verða frumflutt. 17. mars NÝTT ÍSLENSKT VERK FYRIR EINLEIKSFIÐLU UNA SVEINBJARNARDÓTTIR, fiðla, og TINNA ÞORSTEINSDÓTTIR, píanó, frumflytja verk eftir Unu Sveinbjarnardóttur og flytja verk eftir Alfred Schnittke. 24. mars NÝ ÍSLENSK OG ERLEND VERK PAMELA DE SENSI, flauta, og EGGERT PÁLSSON, slagverk, frumflytja ný verk eftir Elínu Gunnlaugsdóttur, Oliver Kentish og Antonio Cocomazzi og flytja í fyrsta skipti hérlendis verk eftir Anthony Holland. GUÐRÚN ÁSMUNDSDÓTTIR er sögumaður í verki Elínar.
|
6.2.2010 |
Almennt efni
| kmjoll
Musica nova - Umsóknarfrestur er 19. febrúar
Nýsköpunarsjóður tónlistar - Musica nova auglýsir eftir umsóknum um styrki til nýsköpunar í tónlist og rennur umsóknarfrestur út 19. febrúar næstkomandi. Sjá auglýsingu
|
30.1.2010 |
Almennt efni
| kmjoll
Sumartónleikar Listasafns Sigurjóns Ólafssonar - 23. feb
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar býður tónlistarfólki að sækja um þátttöku í sumartónleikum safnsins 2010 sem haldnir verða á þriðjudagskvöldum frá 13. júlí til 31. ágúst. Umsókn skal fylgja (i) efnisskrá, eða drög að efnisskrá, (ii) upplýsingar um flytjendur (c.v.) og (iii) kjörtími tónleika innan fyrrgreinds tímabils. Umsóknir skulu hafa borist fyrir 23. febrúar 2010. Valið verður úr umsóknum og öllum svarað fyrir lok mars. Umsóknir má senda í pósti á neðangreint póstfang, eða í tölvupósti LSO@LSO.is Þeir sem senda tölvupóstfang með umsókninni fá staðfestingu á móttöku umsóknar. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar Laugarnestanga 70 105 Reykjavík. Sími 553 2906 Fax 581 4553 Athygli skal vakin á því að allt kynningarefni (Ljósmynd(ir), stutt cv og yfirlit efnisskrár á íslensku og ensku) þarf að hafa borist safninu í síðasta lagi 15. maí. Endanleg efnisskrá (á ensku og íslensku), textar og prógramnótur þurfa að hafa borist safninu a.m.k. 6 vikum fyrir tónleikana. Nánar verður fjallað um það í bréfi til þeirra sem munu taka þátt í tónleikaröðinni.
|
28.1.2010 |
Almennt efni
| kmjoll
Norræna upplýsingaskrifstofan á Akureyri
Ég hef sett inn umsóknarfresti styrkja á heimasíðu Norrænu upplýsingaskrifstofunnar. Þar er hægt að finna m.a. ferðastyrki og norræna styrki til menningarmála. Slóðin er http://www.akmennt.is/nu/styrkir.htm Góðar kveðjur María Jónsdóttir Forstöðumaður Norrænu upplýsingaskrifstofunnar Leder Nordisk informationkontor Netfang/e-post: mariajons@akureyri.is hjemmeside: www.akmennt.is/nu
|
25.1.2010 |
Almennt efni
| kmjoll
Nútímatónlist og alþjóðleg tækifæri - 28. janúar
ÚTÓN stendur fyrir hringborðsumræðum um alþjóðleg tækifæri og kynningu á listamönnum í samstarfi við TÍ og Tónverkamiðstöðina Boðið verður upp á hringborðsumræður með listrænum stjórnendum og þeirra sem vinna að framgangi nútímatónlistar í Evrópu. Leitað verður svara við spurningum á borð við hvernig þróa tónlistarmenn og tónskáld listrænan feril sinn á alþjóðavísu? Hvernig er best staðið að kynningarmálum? Hvaða tækifæri ber að nýta til að auka orðstír? Hvernig nálgast fólk umboðsmenn og dreifingarfyrirtæki? Fyrir svörum sitja Graham McKenzie, listrænn stjórnandi Huddersfield hátíðarinnar í Englandi, Faith Wilson, almannatengslafulltrúi hjá Faith Wilson Arts Publication í Englandi, Thorbjorn Hansen, listrænn stjórnandi Wundergrund hátíðarinnar í Kaupmannahöfn, Mark Delaere, listrænn stjórnandi frá Transit hátíðinni í Leuvans í Belgíu og Michael Rebahn frá útvarspsinfóníunni í Frankfurt (Hessischer Rundfunk HR2 Kultur). Áhugasamir eru beðnir um að skrá sig hjá frida@mic.is. Allir velkomnir og aðgangur frír á meðan húsrúm leyfir. Hringborðsumræðurnar fara fram í salarkynnum Tónverkamiðstöðvarinnar á 6. hæð, Skúlatúni 2, 105 Reykjavík, föstudaginn 29. janúar frá kl. 15.30 – 16.30. Frekari upplýsingar veitir Anna Hildur í síma 8244371 eða anna@icelandmusic.is Kamilla Ingibergsdóttir Project Manager | Research and Development Mobile: +354 863 3499 | kamilla@icelandmusic.is
|
25.1.2010 |
Almennt efni
| kmjoll
Sænsk-íslenski samstarfssjóðurinn - ferðastyrkir 1. feb.
Árið 2010 verða veittir úr Sænsk-íslenska samstarfssjóðnum ferðastyrkir til að styðja íslenska þátttakendur í sænsk-íslenskum og norrænum verkefnum. Markmið sjóðsins er að stuðla að auknu samstarfi Svíþjóðar og Íslands á sviði vísinda, menntunar og menningar. Um styrki þessa skal sótt á sérstökum vefeyðublöðum sem er að finna á vefslóðinni www.nordiskafonder.se. Umsóknarfrestur er til 1. febrúar 2010 og skal skila umsóknum rafrænt á vefnum. Styrkjunum verður úthlutað í lok mars. Sjá nánar um sjóðinn hér http://www.menntamalaraduneyti.is/afgreidsla/sjodir-og-eydublod/menningarmal/nr/1844
|
25.1.2010 |
Almennt efni
| kmjoll
Opið fyrir umsóknir í Tíbrá - til 20. febrúar
TÍBRÁ – tónleikaröð Salarins auglýsir eftir umsóknum fyrir starfsárið 2010-2011. Eftirfarandi þarf að fylgja umsóknunum: Ferilskrá, efnisskrá, myndir af flytjendum og símanúmer og netföng. Einnig væri gott að fá upplýsingar um óskatíma flytjenda. Umsóknir sendist á salurinn@salurinn.is merkt TÍBRÁ 2010-2011. Valið er úr umsóknum og verður öllum svarað að því loknu. Umsóknarfrestur er til 20. febrúar 2010.
|
23.1.2010 |
Almennt efni
| kmjoll
Ferðastyrkir Letterstedtska sjóðsins - 15. febrúar
Letterstedtski sjóðurinn hefur það hlutverk að styrkja norrænt samstarf og samstarf við Eystrasaltsríkin á sviði rannsókna, lista, vísinda og fræða. Íslandsdeild sjóðsins auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum árið 2010 og er umsóknarfrestur til 15. febrúar n.k. Ekki er um eiginlega námsstyrki að ræða, heldur koma þeir einir til greina, sem lokið hafa námi og hyggja á frekari rannsóknir eða þekkingaleit á starfssviði sínu, svo sem við rannsóknir á vísinda- eða fræðastofnun eða með þátttöku í fundum eða ráðstefnum. Styrkir eru einungis veittir til ferða milli norrænu landanna og Eystrasaltsríkjanna, en hvorki til ferða innan landanna né til uppihalds. Umsóknir með greinargóðum upplýsingum um tilgang fararinnar skal senda til ritara Íslandsdeildar Letterstedtska sjóðsins, Snjólaugar G. Ólafsdóttur, Vesturbrún 36, 104 Reykjavík, fyrir 15. febrúar n.k. Þór Magnússon, formaður Íslandsdeildar sjóðsins, veitir frekari upplýsingar í s. 551 5320. Upplýsingar um sjóðinn og styrkveitingar úr honum er og að finna á slóðinni: http://www.letterstedtska.org/anslag_2010.htm
|
22.1.2010 |
Almennt efni
| kmjoll
Barnamenningarhátið - Viltu leggja lóð á vogarskálarnar?
Efnt verður til Barnamenningarhátíðar í Reykjavík á vordögum. Hátíðin fer fram víðsvegar um borgina; ofan í sundlaugum, uppi í Esjuhlíðum, á skólalóðum, á öldum ljósvakans og á götum úti. Hátíðin fjallar um menningu barna, menningu með börnum og menningu fyrir börn. Hún getur inniborið matarmenningu og málþing, íþróttir og inniveru, leiklist og listdans og í rauninni alla fleti menningar, bara að það sé skýr tenging við börn og barnamenningu. Hátíðin er hugsuð fyrir börn á leik- og grunnskólaaldri. Barnamenningarhátíð hefst mánudaginn 19. apríl og lýkur sunnudaginn 25. apríl. Inn í þessa viku kemur sumardagurinn fyrsti, fimmtudaginn 22. apríl. Þema hátíðarinnar að þessu sinni verður forvitni. Æskilegt er að stærstur hluti hátíðarinnar verði í anda þátttökuhátíða á borð við Menningarnótt og Vetrarhátíð þar sem áhersla er lögð á aðgengi fyrir alla með ókeypis aðgangi að viðburðum. Ef nauðsynlegt er að krefjast aðgangseyris á einstaka viðburði þarf að stilla honum í hóf. Höfuðborgarstofa vinnur ásamt verkefnisstjórn hátíðarinnar að samræmingu viðburða, kynningarstarfi og fleiru en viðburðirnir sem mynda dagskrá hátíðarinnar eru skapaðir og framkvæmdir af hugmyndaríku fólki út um alla borg. Höfuðborgarstofa hvetur alla sem áhuga hafa á því að efla barnamenningu, hverju nafni sem hún nefnist, að leggja lóð á vogarskálarnar. Þessi hátíð er ekki byggð upp á stórum viðburðum heldur mörgum smáum. Hún rúmar allar listgreinar og allt sem að börnum snýr. Með góðum kveðjum, Skúli Gautason og Guðríður Inga Ingólfsdóttir, verkefnisstjórar skuli.gautason@reykjavik.is gurry@visitreykjavik.is P.s. Stofnaður hefur verið Facebook-hópur sem heitir Barnamenningarhátíð í Reykjavík 2010. Þar er opinn umræðuvettvangur og skemmtilegum hugmyndum kastað á milli. Skráðu þig endilega í hópinn.
|
22.1.2010 |
Almennt efni
| kmjoll
Reykjavík Loftbrú - breytt skilyrði!
Stjórn Reykjavíkur Loftbrúar samþykkti á stjórnarfundi sínum þann 12. janúar 2010 að framlengja starfstíma sjóðsins út árið 2010. Jafnframt voru samþykkt ný skilyrði fyrir úthlutun og breytt fyrirkomulag á útgáfu farmiða. Skilyrði og umsóknareyðublað hafa verið uppfærð með tilliti til þessa. Vinsamlegast kynnið ykkur breytt fyrirkomulag og ný skilyrði á http://www.reykjavik.is/loftbru. Þar er einnig að finna nýtt umsóknareyðublað en eldra eyðublað er fallið úr gildi. Fyrirspurnum má beina í loftbru@reykjavik.is. Með bestu kveðju, ----------------------------------------------------------------------------- Kristjana Nanna Jónsdóttir skrifstofustjóri skrifstofu Menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar Ingólfsnaust - Vesturgata 1 101 Reykjavík sími: 590 1520 http://www.reykjavik.is/menningogferdamal
|
21.1.2010 |
Almennt efni
| kmjoll
Útgerðin - Nýtt gjörningarými Hugmyndahúss háskólanna
Hugmyndahús háskólanna auglýsir eftir umsóknum um aðstöðu í Útgerðinni. Útgerðin er rúmlega 2000 fermetra hrátt verksmiðjuhúsnæði á Granda. Útgerðinni er ætlað að vera öflugri grasrót listalífsins skjól og vettvangur fyrir tilraunir og samstarfsverkefni þvert á listgreinarnar. Útgerðin veitir listamönnum, hópum og verkefnum aðstöðu til æfinga, sýninga, gjörninga, viðburða og hátíðahalds. Verkefni sem koma inn í húsið borga lágmarks aðstöðugjald eftir stærð og umfangi. Umsóknir með lýsingu á verkefni og upplýsingum um aðstandenda skulu sendar rafrænt á utgerdin@hugmyndahus.com
Listamenn úr öllum listgreinum eru hvattir til þess að senda inn umsóknir. Allar frekari upplýsingar gefur Steinunn Knútsdóttir, utgerdin@hugmyndahus.com eða í síma 662-4805. Hugmyndahús háskólanna býður áhugasömum að skoða aðstöðuna Grandagarði 16 2. hæð mánudaginn 25. janúar 15:00 – 17:00.
|
21.1.2010 |
Almennt efni
| kmjoll
Fræðslukvöld ÚTÓN: Skattar og rekstrarform 2. febrúar
Fræðslukvöld um skatta og rekstrarform verður haldið þriðjudaginn 2. febrúar frá kl. 19.30-22.00 í Norræna húsinu. Á námskeiðinu verður leitast við að svara spurningum um hvernig best er að hátta sjálfstæðum rekstri og hvað bera að hafa í huga varðandi skattamál. Frá ríkisskattsstjóra mæta deildarstjórarnir Elín Alma Arthúrsdóttir og Bjarni Amby Lárusson, en bæði hafa þau margra ára reynslu af störfum í skattkerfinu og hafa margsinnis sinnt námskeiðshaldi á vegum embættisins. Elín, sem er viðskiptafræðingur að mennt, mun fara í saumana á þeim rekstrarformum sem henta tónlistarfólki við mismunandi aðstæður, hvernig best er að stofna til þeirra og hvaða kvaðir og skyldur kunna að fylgja. Lögfræðingurinn Bjarni Amby mun m.a. fara náið í saumana á virðisaukaskattskerfinu, muninum á innskatti og útskatti, hvernig haga á skilum á VSK og hvaða liðir eru frádráttarbærir sem rekstrarkostnaður. Að erindum sínum loknum sitja þau fyrir svörum. Þá munu lögfræðingurinn Guðmundur Thorlacius frá lögmannstofunni LEX, Gunnar Ásgeirsson endurskoðandi hjá PriceWaterhouseCoopers og Sturla Mio Þórisson, rekstrarstjóri Gróðurhússins og Bedroom Community, taka þátt í pallborði undir stjórn Önnu Hildar Hildibrandsdóttir, framkvæmdastjóra ÚTÓN. Þar verður farið yfir tvísköttunarsamninga og alþjóðleg skattamál er snerta tónlistarfólk, mismunandi rekstrarform og reynslu þessara aðila af rekstri tónlistarverkefna. Rætt verður um hlutverk lögfræðinga og bókhaldara, hvað þjónusta þeirra kostar og hvenær á ferlinum er nauðsynlegt að kaupa þjónustu þeirra. Námskeiðsgjald er 2500 krónur fyrir félagsmenn FTT, TÍ, FÍH, FÍT og FHF og 4000 krónur fyrir aðra. Innifalið í námskeiðsgjaldi eru námskeiðsgögn og létt hressing. Nauðsynlegt er að skrá sig fyrirfram. Námskeiðið er öllum opið og er tónlistarfólk og aðrir aðilar með sjálfstæðan rekstur í tónlistarbransanum hvatt til að fjölmenna. Skráning fer fram hjá thorey@utflutningsrad.is og í síma 511 4000 og allar nánari upplýsingar fást hjá kamilla@icelandmusic.is. Kamilla Ingibergsdóttir Project Manager | Research and Development Mobile: +354 863 3499 | kamilla@icelandmusic.is
|
21.1.2010 |
Almennt efni
| kmjoll
Norræna menningargáttin - Umsóknarfrestir vorið 2010
Búið er að birta umsóknarfresti vegna styrkja í Ferða og dvalarstyrkjaáætluninna,og menningar og listaáætlunina. Umsóknarfrestir eru nokkurnvegin þeir sömu og þeir voru árið 2009. Nú er opið fyrir styrki til dvalarsetra. Nánar
|
21.1.2010 |
Almennt efni
| kmjoll
Starfsmenntunarsjóður tónlistarkennara - 15. febrúar
Umsóknarfrestur til að sækja um Námslaun ( A – deild ) fyrir skólaárið 2010 -2011 til Starfsmenntunarsjóðsins er til 15. febrúar n.k. Öll gögn sem umsækjendur vilja láta fylgja með umsókninni þurfa að hafa borist sjóðnum í síðasta lagi þann dag, annars verður umsóknin ekki tekin til afgreiðslu. Þeir sem fá námslaun eiga rétt á aukagreiðslu vegan kostnaðar, ferðalaga osfr. Þessi upphæð var kr. 140.000 áður, en hækkar nú í 200.000 kr. Sótt er um á netinu og er slóðin http://felagsmenn.fih.is., velja síðan Umsóknir og svo Umsókn um styrk úr Starfsmenntunarsjóði tónlistarskólakennara Ef upp koma vandræði við gerð umsókna , er kennurum bennt á að hafa samband við skólastjórnendur síns skóla eða stéttarfélagið. Námskeið ( B – deild ) Hámarksstyrkur úr B – deild sjóðsins sem áður var 200.000 kr. hefur verið hækkaður í kr. 300.000. Þessa upphæð geta tónlistarskólakennarar í FÍH/FT sótt um á þriggja ára fresti. Hópferðir ( D – deild ) Hámarksstyrkur úr þessari deild verður áfram kr. 60.000. Snorri Örn Snorrason Fulltrúi F.Í.H. í úthlutunarnefnd
|
19.1.2010 |
Almennt efni
| kmjoll
Stokkalækur - Umsóknarfrestur um dvalarstyrk í Selinu 1.feb
Selið á Stokkalæk auglýsir nú eftir umsóknum um dvalarstyrki á árinu 2010. Umsóknir skulu hafa borist fyrir 1. febrúar næstkomandi. Sótt er um á heimasíðunni stokkalækur.is undir flipanum Styrkir og bókanir. Nokkrir styrkir verða úthlutaðir til þeirra tónlistarmanna eða kennara, sem áhuga hafa á að skipuleggja og standa fyrir masterklössum og til ungra tónlistarmanna, sem eru að hefja feril sinn sem atvinnumenn í klassískri tónlist, til æfinga og tónleikahalds. Síðan Selið tók til starfa í júlí síðastliðnum hafa tveir masterklassar verið haldnir á vegum Víkings Heiðars Ólafssonar í október og nú í janúar og samspil á vegum Allegró suzuki tónlistarskólans í september. Hafa þessir aðilar látið vel af dvölinni, hljóðfærin þykja mjög góð og ágætur hljómburður er í salnum. Starfsemin í Selinu er að sjálfsögðu ekki fullmótuð. Þar eru margir kostir í boði, ekki aðeins fyrir píanó heldur einnig fyrir önnur hljóðfæri og söng. Vonandi getur þessi aðstaða hér á Stokkalæk orðið tónlistarfólki til gagns og ánægju í framtíðinni. Með kærri kveðju, Inga Ásta og Pétur Hafstein
|
13.1.2010 |
Almennt efni
| kmjoll
Fréttatilkynning frá Bandalagi íslenskra listamanna
Á aðalfundi Bandalags íslenskra listamanna sem haldinn var 9. janúar sl. tók Kolbrún Halldórsdóttir við forsæti af Ágústi Guðmundssyni sem gegnt hafði stöðu forseta í tvö kjörtímabil, eða frá árinu 2006. Fundurinn hyllti fráfarandi forseta fyrir vel unnin störf og bauð nýjan forseta velkominn til starfa. Á fundinum voru eftirfarandi ályktanir samþykktar. 1. Ályktun um starfslaun listamanna. Í lögum um listamannalaun sem samþykkt voru á Alþingi sl. vor fólst tímabær leiðrétting á kjörum listamanna. Aðafundur BIL telur mikilvægt að stjórnvöld standi við áform um fjölgun mánaðarlauna í starfslaunasjóðum svo sómi verði að framkvæmd laganna. Fjárlög 2010 gera ráð fyrir talverðum niðurskurði framlaga til tónlistarsjóðs, bókmenntasjóðs, barnamenningarsjóðs, starfsemi atvinnuleikhópa og kvikmyndasjóðs. BÍL telur að með því sé hoggið nærri grundvelli ýmissa nauðsynlegra verkefna á sviði lista og hvetur stjórnvöld til að standa vörð um fjárframlög til sjóðanna. 2. Ályktun um húsnæðisvanda Listaháskóla Íslands Aðalfundur BÍL hvetur stjórnvöld eindregið til að leysa sem allra fyrst úr húsnæðisvanda Listaháskóla Íslands og koma honum undir eitt þak. Listaháskólinn er nú starfræktur víðsvegar um borgina sem hamlar bæði starfsemi hans og listrænni framþróun. Ekki þarf að fjölyrða um mikilvægi Listaháskólans fyrir framtíð íslenskrar menningar. 3. Ályktun um tónlistarhús Bandalag íslenskra listamanna lýsir yfir sérstakri ánægju með að ríki og borg skyldu taka höndum saman um að ljúka við byggingu tónlistar- og ráðstefnuhúss. Harpa mun verða mikil lyftistöng, ekki bara fyrir tónlistarlíf þjóðarinnar heldur einnig fyrir menningarímynd hennar og mun gjörbreyta allri aðstöðu til tónleikahalds. BÍL vill leggja áherslu á að fulltrúar fagfélaga tónlistarmanna komi hið fyrsta með beinum hætti að stefnumótun listrænnar starfsemi í húsinu.
|
7.1.2010 |
Almennt efni
| kmjoll
Fræðslukvöld ÚTÓN: Kynning á styrkjum og sjóðum - 12. janúar
Fyrsta fræðslukvöld ársins verður haldið þriðjudaginn 12. janúar frá kl. 19.30-22.00 í Norræna húsinu. Farið verður yfir alla helstu sjóði er standa tónlistarfólki til boða og hvernig þeir starfa; hvaða kröfur þeir gera og hvernig best er að sækja í þá fé. Fjallað verður um gerð umsókna, raunhæfra fjárhagsáætlana, auk fleiri atriða sem skipta máli þegar sóst er eftir styrkjum. Einnig munu fulltrúar nokkurra sjóða - bæði úr einkageiranum og hinum opinbera - halda erindi og fjalla um hvernig starfi þeirra er háttað og svara síðan spurningum úr sal. Þeirra á meðal eru Þuríður Kristjánsdóttir frá Norræna menningarsjóðnum, Rósa Þorsteinsdóttir frá Menningaráætlun Evrópusambandsins og Eldar Ástþórsson frá Kraumi tónlistarsjóði. Námskeiðsgjald er 2500 krónur fyrir félagsmenn FTT, TÍ, FÍH, FÍT og FHF og 4000 krónur fyrir aðra. Innifalið í námskeiðsgjaldi eru námskeiðsgögn og létt hressing. Nauðsynlegt er að skrá sig fyrirfram. Skráning og nánari upplýsingar veitir Kamilla Ingibergsdóttir hjá kamilla@icelandmusic.is og í síma 511 4000. Facebook viðburður: http://www.facebook.com/home.php?ref=home#/event.php?eid=238818646985&ref=nf Kamilla Ingibergsdóttir Project Manager | Research and Development Mobile: +354 863 3499 | kamilla@icelandmusic.is
|
23.12.2009 |
Almennt efni
| kmjoll
Jóla- og nýjárskveðjur
Stjórn FÍT sendir félagsmönnum bestu óskir um gleðilega hátíð og gæfu á nýju ári með þökkum fyrir liðin ár! Við vekjum athygli á nýjum myndum á síðunni (til vinstri) um norræna tónleikasamstarfið á árinu 2009.
|
23.12.2009 |
Almennt efni
| kmjoll
Skráning til þátttöku í ÍTV til áramóta
Skráning til þátttöku í Íslensku tónlistarverðlaununum er hafin á www.iston.is .Gjaldgeng eru öll útkomin verk ársins 2009. Skilafrestur er til áramóta og engra þátttökugjalda er krafist. Auk skráningar þarf að skila að lágmarki tveimur eintökum af hverju hljóðriti til: ÍTV, Rauðagerði 27, 108 Reykjavík. Útgefendum er frjálst að leggja fram 6 eintök til viðbótar fyrir dómnefndarmeðlimi, sem annars hafa aðgang að útgáfum á sérstöku vefsvæði á tonlist.is
|
23.12.2009 |
Almennt efni
| kmjoll
Ferðastyrkir Sænsk-íslenska samstarfssjóðsins
Sænsk-íslenski samstarfsjóðurinn veitir ár hvert ferðastyrki vegna samstarfs milli landanna tveggja á sviði menningar, mennta og rannsókna. Næsti umsóknarfrestur er 1. febrúar 2010 fyrir tímabilið frá apríl 2010 til marsloka 2011. Hver styrkur er að upphæð 7.000 SEK. Nánari upplýsingar er að finna á www.nordiskafonder.se .
|
18.12.2009 |
Almennt efni
|
Listamannabústaðir á Álandseyjum
Auglýst er eftir umsóknum um listamannabústaði á Álandseyjum og er umsóknarfrestur 31. janúar 2010. Úthlutunartímabilið er apríl - september 2010. Meiri upplýsingar má nálgast hér www.kultur.ax/gastbostad.htm og umsóknir sendist til Åland kulturdelegation, PB 1060, AX-22111 Mariehamn, Åland. Nánari upplýsingar eru einnig hér á heimasíðunni okkar á síðunni um listamannabústaði http://www.fiston.is/default.aspx?PageID=149
|
11.12.2009 |
Almennt efni
| kmjoll
Tónlistarhúsið fær nafnið HARPA
Í dag á Degi íslenskrar tónlistar var tilkynnt um hvaða tillaga varð hlutskörpust um nafn á Tónlistarhúsið. Efnt var til hugmyndasamkeppni um nafnið á vordögum 2008 og voru innsendar tillögur rúmlega 4000 frá um 1200 aðilum. Það voru samtals 54 sem áttu þá tillögu sem varð hlutskörpust og verður þeim öllum sent viðurkenningarskjal. Nafnið hefur fleiri en eina merkingu og er auðskilið bæði á íslenska og erlendar tungur. Fyrir utan augljósa tengingu við tónlist og hljóðfæri merkir nafnið einnig upphaf sumars í íslensku og er þannig tákn vorsins. Tónlistarmönnum og íslensku þjóðinni allri er óskað til hamingju með nafnið. Tilkynnt var um nafnið á fjölmennri samkomu í Tónlistarhúsinu kl. 15:30 í dag, 11. desember 2009, færð inn í húsið af hafnarbakkanum vegna veðurs. Fyrr um daginn var dagskrá á vegum Samtóns í tilefni dagsins á veitingastaðnum Orange við Lækjartorg þar sem m.a. var tilkynnt um hver hlaut Bjarkarverðlaunin í ár sem að jafnaði er fært þeim aðila úr heimi fjölmiðlanna sem þykir hafa unnið hvað ötulast í þágu tónlistarinnar. Í þetta sinn var það Vernharður Linnet sem hlaut Bjarkarlaufið fyrir framgöngu sína í þágu djasstónlistar.
|
25.11.2009 |
Almennt efni
| kmjoll
Jólaglögg ÚTÓN - söngur, glögg, gaman...
ÚTÓN heldur árlegt jólaglögg þriðjudaginn 1. desember á milli 19 og 21 á Kaffi Rosenberg við Klapparstíg. Glöggið er í boði félaga tónlistarmanna og útgefenda: FÍH, FÍT, FTT, SFH, FHF og TÍ. Svavar Knútur mun sjá um að stimpla jólaskapið rækilega inn á þessu fyrsta kvöldi jólamánaðarins og boðið verður upp á Rosenberg glögg og piparkökur. Helstu hagsmunafélög tónlistarmanna og útgefenda munu kynna starfsemi sína á markaðstorgi en þau eru: Félag íslenskra hljómslistarmanna FÍH Félag tónskálda og textahöfunda FTT Tónskáldafélag Íslands TÍ Félag íslenskra tónlistarmanna FÍT Samband flytjenda og hljómplötuframleiðanda SFH Félag hljómplötuframleiðanda FHF Jólaglöggsgestir fá tækifæri til að fræðast um hvaða kostir fylgja því að vera skráður í félögin, hvaða skilyrði liggja þar að baki og forsvarsmenn félaganna munu svara þeim spurningum sem kunna að vakna. Þessi jólaglöggsgleði er liður í mánaðarlegum námskeiðum sem ÚTÓN stendur fyrir. Allir eru velkomnir, bæði innan- og utanfélagsmenn. Aðgangur er ókeypis. Vinsamlega skráið ykkur fyrirfram (enda tveir jólaglöggsmiðar í boði fyrir skráða við innganginn). Skráningar fara fram hjá Þóreyju í síma 511 4000 eða thorey@utflutningsrad.isFrekari upplýsingar veitir Kamilla Ingibergsdóttir í síma 863 3499 eða kamilla@icelandmusic.is. Facebook viðburðurinn: http://www.facebook.com/home.php?#/event.php?eid=185971225828&ref=nf Kamilla Ingibergsdóttir Project Manager | Research and Development Mobile: +354 863 3499 | kamilla@icelandmusic.is Iceland Music Export Borgartún 35 105 Reykjavík, Iceland Tel: +354 511 4000 | Fax: +354 511 4040 | http://www.icelandmusic.is
|
3.11.2009 |
Almennt efni
| kmjoll
Fyrsta fræðslukvöld ÚTÓN 3. nóvember
ÚTÓN kynnir fyrsta fræðslukvöld vetrarins: Stafræn kynningarmál og markaðssetning Fyrsta fræðslukvöld ÚTÓN í vetur verður haldið þriðjudaginn 3. nóvember frá kl. 19.30-22.00 í Norræna húsinu. Farið verður yfir hvernig best er að nýta netið til kynningar á tónlist og menningarverkefnum. Farið verður yfir gagnsemi samfélagssíðna á borð við Facebook, Myspace, Flickr og You Tube svo fáeinar séu nefndar. Farið verður yfir gagnsemi póstlista og fyrirtæki sem hafa umsjón með póstlistum. Leitast verður við a svara hvað virkar í kynningu og markaðssetningu, hvernig það virkar – og hvað virkar ekki. Ariel Hyatt fjölmiðlaplöggari frá Cyber PR í New York hefur umsjón með fræðslukvöldinu. Hún hefur víðtæka reynslu af markaðssetningu á netinu og hefur á síðustu 13 árum verið fulltrúi yfir 1400 tónlistarmanna. Námskeiðsgjald er 2500 krónur fyrir félagsmenn FTT, TÍ, FÍH, FÍT og FHF og 4000 krónur fyrir aðra. Innifalið í námskeiðsgjaldi eru námskeiðsgögn og létt hressing. Nauðsynlegt er að skrá sig fyrirfram. Skráningar fara fram hjá Grétu á greta@utflutningsrad.is eða í síma 511 4000. Nánari upplýsingar veitir Kamilla Ingibergsdóttir í síma 591 0384.
Kamilla Ingibergsdóttir Project Manager | Research and Development Mobile: +354 863 3499 | kamilla@icelandmusic.is Iceland Music Export Borgartún 35 105 Reykjavík, Iceland Tel: +354 511 4000 | Fax: +354 511 4040 | http://www.icelandmusic.is
|
3.11.2009 |
Almennt efni
| kmjoll
Norræna menningagáttin - ferðastyrkir 11. nóvember
Opið er fyrir ferðastyrki hjá Norrænu menningargáttinni til 11.11.2009. Ferðastyrkir eru ætlaðir til allrar lista- og menningarstarfsemi á Norðurlöndunum og í Eystrasaltslöndunum: Fagfólks innan allra listgreina, höfunda fagurbókmennta, þýðenda, sýningarstjóra, framleiðenda, blaðamanna sem starfa við menningartengt efni, menningarfræðinga o.s.frv. - Fagfólk getur sótt um dvalarstyrk í öðru landi á Norðurlöndunum eða í Eystrasaltslöndunum - Dvalarstyrkur stendur straum af kostnaði fyrir sjö sólarhringa að hámarki (fimm virkir dagar + helgi). Forsendur útreiknings miðast annarsvegar við dvöl í höfuðborg og hinsvegar við dvöl á öðru svæði - Athugið að umsækjandi og styrkþegi verður að vera sama manneskjan og að styrkir eru einungis veittir einstaklingum, ekki hópum
http://www.kknord.org/lang-is/menningaraaetlanir/fereastyrkjaaaetlunin/fereastyrkir
Nánari upplýsingar og aðstoð veitir: Þuríður Helga Kristjánstdóttir Verkefnastjóri / Prosjektleder / Project Manager Norræna húsið / Nordens hus / Nordic house Sími / tel: +354 551 7032 thuridur@nordice.is www.norraenahusid.is
|
16.10.2009 |
Almennt efni
| kmjoll
"Svanurinn minn syngur" í Gerðubergi 18. október
Sýning, tónlist, ljóðalestur og fróðleikur í Gerðubergi sunnudaginn 18. október 2009 kl. 14-16. Sýningarstjóri: Guðfinna M. Hreiðarsdóttir, sagnfræðingur. Listrænn stjórnandi tónlistardagskrár: Nína Margrét Grímsdóttir, píanóleikari. Sunnudaginn 18. október verður flutt dagskrá í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi undir yfirskriftinni: Óður til Höllu Eyjólfsdóttur, skáldkonu (1866-1937). Tilefnið er opnun sýningarinnar Svanurinn minn syngur. Líf og ljóð skáldkonunnar Höllu Eyjólfsdóttur . Guðfinna M. Hreiðarsdóttir, sagnfræðingur, á heiðurinn af sýningunni sem sett var upp á Ísafirði árið 2008 um leið og gefin var út bók um sama efni. Halla Eyjólfsdóttir var húsfreyja á stórbýlinu Laugabóli við Ísafjarðardjúp frá lokum 19. aldar og fram á fyrri hluta 20. aldar. Hún var ekki einungis fjórtán barna móðir heldur lenti öll bústjórn að miklu leyti á henni þar sem eiginmaður hennar, Þórður Jónsson, var formaður á eigin skipi og því lítið heima við. Guðfinna segir í bók sinni um Höllu: „Þótt hlutskipti Höllu yrði að stjórna stóru búi mestan hluta ævinnar, þá var skáldskapurinn hennar hjartans mál. Hún gat hins vegar aðeins sinnt honum í hjáverkum og í ljóðum hennar urðu fuglar himinsins og himinhnettirnir táknmyndir hins frjálsa anda með lausn frá amstri hversdagslífsins.“ Dagskráin leitast við að gefa innsýn í þau yrkisefni sem voru skáldkonunni hugleiknust - ástina, náttúruna og sorgina. Listrænt samstarf Höllu við tónskáldið Sigvalda Kaldalóns fær sérstakan sess þar sem söngvararnir Nathalía Druzin Halldórsdóttir, mezzósópran og Gissur Páll Gissurarson, tenór, flytja ásamt Nínu Margréti Grímsdóttur, píanóleikara, úrval þeirra sönglaga Sigvalda sem samin voru við ljóð Höllu s.s. Svanurinn minn syngur, Maríubæn og Ég lít í anda liðna tíð. Á dagskránni mun enn fremur tónskáldið Elín Gunnlaugsdóttir flytja erindi um samspil tóna og ljóða, lesið verður úr ljóðum Höllu; sellóleikarinn Margrét Árnadóttir flytur, ásamt Nínu Margréti, Tilbrigði um íslenskt þjóðlag frá árinu 1964 eftir fyrsta kventónskáld okkar, Jórunni Viðar og stúlknakórinn Graduale Nobili flytur kórlög eftir íslensk kventónskáld undir stjórn Jóns Stefánssonar, þ.m.t. Barnagælur Jórunnar. Óður til Höllu Eyjólfsdóttur, skáldkonu er því helgaður listsköpun hennar, en er jafnframt óður til listsköpunar íslenskra kvenna fyrr á öldum og fram á okkar tíma.“ Fjölmiðlafólk athugið! Generalprufa fer fram í Gerðubergi í dag kl. 17-19. Þá gefst færi til að taka upp brot úr dagskránni og ljósmynda flytjendur. Þeir sem óska eftir að fá að birta ljósmyndir af Höllu hafi samband við undirritaða.
|
13.10.2009 |
Almennt efni
| kmjoll
Klassík í Vatnsmýrinni - "Fegurð flautunnar" - 21. október
Martial Nardeau, flautuleikari, heldur einleikstónleika í Norræna húsinu miðvikudagskvöldið 21. október kl. 20.00. Eru þetta fjórðu og síðustu tónleikar ársins 2009 í tónleikaröð Félags íslenskra tónlistarmanna og Norræna hússins, “Klassík í Vatnsmýrinni”. Á efnisskrá tónleikanna eru verk eftir feðgana Johann Sebastian og Carl Philipp Emanuel Bach, svo og verk eftir Friedrich Kuhlau og frönsku tónskáldin Marin Marais og Claude Debussy. Martial Nardeau hóf að læra á flautu níu ára gamall hjá Raymond Pauchet í Tónlistarskólanum í Boulogne sur Mer í Frakklandi og útskrifaðist þaðan sextán ára gamall. Á næstu árum hélt hann áfram námi í París hjá Fernand Caratgé og Roger Bourdin og vann til margra verðlauna og viðurkenninga. Á árunum 1979 til 1982 var hann fastráðinn við Lamoureux-sinfóníuhljómsveitina í París ásamt því að vera flautukennari við ríkistónlistarskólana í Limoges og Amiens en kom jafnframt víða fram sem einleikari. Árið 1982 settist Martial að á Íslandi. Hann hefur æ síðan starfað í Kammersveit Reykjavíkur og Hljómsveit Íslensku óperunnar, Kammersveit Hallgrímskirkju og leikið með fjölmörgum tónlistarhópum. Hann er fastráðinn við Sinfóníuhljómsveit Íslands og starfar sem kennari við Listaháskóla Íslands. Martial hefur einnig ferðast mikið sem tónlistarmaður, komið fram í um það bil 20 löndum og leikið einleik með hljómsveitum hér heima og erlendis. Hann er ekki við eins fjölina felldur í tónlistariðkun sinni því hann leikur einnig á barokkflautu, jazzar og semur tónlistar þegar sá gállinn er á honum. Þá hefur Martial alla tíð verið ötull við flutning íslenskra verka, sem mörg hafa verið samin fyrir hann og hefur hann gefið út tvo geisladiska hjá Íslenskri tónverkamiðstöð. Martial hefur nokkrum sinnum hlotið starfslaun listamanna frá menntamálaráðuneytinu og starfsstyrki t.d. sem bæjarlistamaður Kópavogs. Aðgangseyrir á tónleikana er 1.500 kr en ókeypis er fyrir nemendur og ungt fólk að 21 árs aldri.
Um tónleikaröðina Félag íslenskra tónlistarmanna hóf í upphafi árs samstarf við Norræna húsið um tónleikaröð með áherslu á norrænt og alþjóðlegt samstarf. Tilgangurinn með tónleikaröðinni er að gefa áheyrendum tækifæri til að hlýða á fyrsta flokks innlenda og erlenda listamenn með áherslu á “sólistann” annars vegar og “kammertónlist” hins vegar. Tónleikarnir eru ávallt á miðvikudagskvöldum og eru fernir á starfsárinu 2009, tvennir með íslenskum flytjendum og tvennir með norrænum flytjendum fyrir samvinnu FÍT við norræn einleikarafélög í Nordisk Solistråd. Miðaverði er stillt í hóf og er sérstaklega reynt að hvetja til aðsóknar ungs fólks með því að veita þeim ókeypis aðgang að tónleikunum. Stjórn tónleikaraðarinnar sér um framkvæmd og skipulagningu auk listrænnar stjórnunar. Tónleikastjórn skipa: Laufey Sigurðardóttir, Hallveig Rúnarsdóttir og Jón Sigurðsson.
|
13.10.2009 |
Almennt efni
| kmjoll
Fréttir frá félaginu
Páll Eyjólfsson gítarleikari mun verða fulltrúi F.Í.T. á NordSol tónleikum í Færeyjum þann 7. nóvember næstkomandi. Þar mun hann leika ásamt fulltrúm frá 4 öðrum einleikurum/dúóum frá norrænu einleikarafélögum. Páll mun leika Dans eftir Mist Þorkelsdóttur og Prelúdíu eftir Villa-Lobos. Tónleikarnir eru haldnir í Norðurlandahúsinu í tengslum við ársfund Nordisk Solistråd í Færeyjum 6.-7. nóvember. Ársfundur Nordisk Solistråd verður haldinn á Íslandi vorið 2010, dagana 10.-12. júní.
Ný tónleikastjórn er tekin til starfa fyrir tónleikaröðina Klassík í Vatnsmýrinni 2010-2011. Í henni munu sitja Sigurður Bragason, söngvari, Guðrún Sigríður Birgisdóttir, flautuleikari og Jón Sigurðsson, píanóleikari. Auglýst verður vegna tónleika í tónleikaröðinni 2010 fyrir áramót.
Framhaldsaðalfundar F.Í.T. var haldinn var 21. september 2009 í Vestursal FÍH í Rauðagerði. Fundarstjóri var Margrét Bóasdóttir, fundarritarar: Jón Sigurðsson og Hallveig Rúnarsdóttir. Á fundinum voru tillögur stjórnar um lagabreytingar samþykktar samhljóða en stjórnin dró tillögu um hækkun félagsgjalda til baka vegna ónógrar þátttöku félagsmanna á fundinum. Á fundinum kom ýmislegt áhugavert og fræðandi fram varðandi fjárhagsaðstæður félagsins, stöðu landsbyggðartónleika, listastefnu BÍL og 70 ára afmæli félagsins 2010 en á næsta ári verður einnig haldinn ársfundur Nordisk Solistråd á Íslandi. Ályktun til fjölmiðla: Félag íslenskra tónlistarmanna (FÍT) er fagfélag íslenskra einleikara, einsöngvara og stjórnenda. Tilgangur þess er að gæta hagsmuna félagsmanna sinna og samkvæmt lögum félagsins ber félaginu að beita sér fyrir vandaðri tónlistarumfjöllun í fjölmiðlum. Framhaldsfundur FÍT haldinn 21. september 2009 beinir því til fjölmiðla að standa vörð um vandaða tónlistarumfjöllun, jafnt kynningu sem gagnrýni þannig að saman fari hagur neytenda, fjölmiðla og tónlistarmanna.
|
2.10.2009 |
Almennt efni
| kmjoll
Frá Starfsmenntunarsjóði tónlistarskólakennara
Umsóknarfrestur til að sækja um styrk vegna námsefnisgerðar ( C deild ) úr Starfsmenntunarsjóðnum rennur út 15. október n.k. Öllum umsóknum verður svarað eigi síðar en 15. desember. Hámarksstyrkur er 700.000 kr. og eru 200.000 kr. greiddar þegar verk er sannanlega hafið og afgangurinn að verki loknu.
|
2.10.2009 |
Almennt efni
| kmjoll
Samtök Tónlistarskólastjóra 40 ára - málþing 3. október
Málþing um stöðu og gildi tónlistarmenntunar, haldið í Hásölum, Tónlistarskóla Hafnarfjarðar laugardaginn 3. október kl. 13 - 17. kl. 13:00 Ávarp formanns STS, Eddu Borg Þorvaldur Gylfason, prófessor: Tónlist, lög og siðir Haukur F. Hannesson, listrekstrarfræðingur: Tónlistarmenntun á Íslandi, saga, þróun og framtíð Guðjón Bragason, lögfræðingur: Lagaumhverfi tónlistarskóla skoðað frá sjónarhóli sveitarfélaga. Drög að frumvarpi til laga um tónlistarfræðslu kynnt. kl. 14:30 Kaffihlé kl. 15:00 - ca. 17:00 Frjálsar umræður. Milli atriða munu nemendur flytja tónlist. Öllum er frjálst að sækja málþingið.
|
25.9.2009 |
Almennt efni
| kmjoll
NordSol tónleikar í Færeyjum - Umsóknarfrestur 3. okt
Stjórn F.Í.T auglýsir eftir einleikara/einsöngvara til að vera fulltrúi Íslands á norrænum kammertónleikum, NordSol tónleikum, sem haldnir verða í tengslum við ársfund Nordisk Solistråd í Þórshöfn, Færeyjum dagana 6.-8. nóvember 2009. Umsækjendur skulu vera félagsmenn F.Í.T. Tónleikarnir verða í Norðurlandahúsinu í Þórshöfn 7. nóvember næstkomandi. Á tónleikunum munu koma fram fulltrúar frá 5 löndum, Íslandi, Danmörku, Noregi, Finnlandi og Færeyjum. Framlag hvers lands skal að hámarki vera 15-20 mínútur að lengd. Æskilegt er að efnisskráin innihaldi minnst eitt íslenskt tónverk. Auglýst er eftir einleiksefnisskrám og / eða einleik með píanó, þar sem ekki er útilokað að hægt sé að útvega píanóleikara fyrir tónleikana. FÍT greiðir bæði ferðakostnað og laun, en Einleikarafélag Föroya sér um uppihald. Umsóknarfrestur er til miðnættis laugardaginn 3. október. Umsóknir skal senda á fiston@fih.is . Móttaka umsókna verður staðfest. Svar við umsóknum mun berast innan 4-5 daga. Með kveðju, stjórnin
|
25.9.2009 |
Almennt efni
| kmjoll
Viltu vera með í Jóladagatali Norræna hússins 2009?
Jóladagatal Norræna hússins verður haldið þriðja árið í röð, eins og nafnið gefur til kynna er um að ræða dagskrá á hverjum degi fram að jólum í desember. Við erum að leita að góðum atriðum í dagatalið í ár, Lengd hvers viðburðar á að vera 10-15 mínútur og má hann vera að hvaða tagi sem er. Sendið okkur lýsingu á atriðinu ásamt stuttri kynningu á þátttakendum, Umsóknin þarf að berast fyrir 15. október 2009 og sendist á thuridur@nordice.is. Hugmyndin á bak við dagatalið er að veita fólki menningarlegan innblástur og lyfta andanum upp í jólaamstrinu. Í fyrra tóku meðal annars þátt; Björk Guðmundsdóttir, Jón Gnarr, Sr Karl Sigurbjörnsson biskup, Ásdís Sif Gunnarsdóttir, Egill Ólafsson, og Motion boys.

|
20.9.2009 |
Almennt efni
| kmjoll
Framhaldsaðalfundur F.Í.T. 21. september kl. 20:00
Framhaldsaðalfundur verður haldinn mánudagskvöldið 21. september, í Vestursal að Rauðagerði 27. Fundurinn hefst kl. 20:00 og áætlað er að honum ljúki fyrir kl. 22:00. Fyrir liggja tillögur um lagabreytingar, hækkun félagsgjalda, óafgreidd ályktun frá síðasta fundi og fleiri mál. Sjá dagskrá fundar. Félagsmenn eru hvattir til að mæta vel til að taka þátt í umræðum og koma skoðunum sínum á framfæri! Með kveðju, Stjórnin
Dagskrá framhaldsaðalfundar: Tveimur dagskrárliðum hefðbundinna aðalfundarstarfa var frestað á aðalfundi félagsins þann 10. júní vegna tímaskorts: það eru í fyrsta lagi tillögur um lagabreytingar og í öðru lagi liðurinn Önnur mál. Lagabreytingar (sjá hjálagðar tillögur) Önnur mál: Hækkun félagsgjalda í 7.500 kr á ári Ályktun til fjölmiðla (sjá hjálagt) Skýrsla verkefnisstjóra um landsbyggðartónleika 70 ára afmæli félagsins 2010 Listastefna BÍL Orðið laust!
Fyrirliggjandi tillögur um lagabreytingar (3 breytingatillögur):
1) 2. grein c. um tilgang félagsins: c: Að beita sér fyrir vandaðri tónlistarumfjöllun í fjölmiðlum.
Núgildandi lög: 2. grein c: Að beita sér fyrir vandaðri tónlistargagnrýni í blöðum og tímaritum.
2) 3. grein a. um félagsaðild Rétt til að gerast félagar eiga þeir, sem fullnægja eftirtöldum skilyrðum: a: Félagsmenn geta orðið tónlistarmenn (einleikarar; einsöngvarar; stjórnendur) sem uppfylla eftirtalin skilyrði: Viðkomandi skal hafa stundað ítarlegt tónlistarnám (háskólanám eða sambærilegt), vera virkur í íslensku tónlistarlífi og hafa hlotið ótvíræða viðurkenningu fyrir tónlistarstörf sín.
Núgildandi lög 3. grein Rétt til að gerast félagar eiga þeir, sem fullnægja eftirtöldum skilyrðum: a: Félagsmenn geta orðið íslenskir og erlendir tónlistarmenn (einleikarar; einsöngvarar; stjórnendur) búsettir á Íslandi, og íslenskir tónlistarmenn búsettir erlendis, sem uppfylla eftirtalin skilyrði: Viðkomandi skal hafa stundað ítarlegt tónlistarnám, hafa tónlist að aðalstarfi og hlotið ótvíræða viðurkenningu fyrir.
3) 9. grein, liðir e-g: Aðalfundarstörf eru þessi: a: Fundargerð síðasta aðalfundar borin upp til samþykktar. b: Skýrsla formanns. c: Lagðir fram til samþykktar endurskoðaðir félagsreikningar fyrir síðasta reikningsár. d: Tillögur til lagabreytinga ef fram eru bornar. e: Umsóknir nýrra félaga. f: Kosin stjórn, varastjórn og skoðunarmenn reikninga. g: Önnur mál.
Núgildandi lög: 9. grein Aðalfundarstörf eru þessi: a: Fundargerð síðasta aðalfundar borin upp til samþykktar. b: Skýrsla formanns. c: Lagðir fram til samþykktar endurskoðaðir félagsreikningar fyrir síðasta reikningsár. d. Tillögur til lagabreytinga ef fram eru bornar. e. Kosin stjórn, varastjórn og skoðunarmenn reikninga. f. Nýir félagar og önnur mál.
Ályktun Til fjölmiðla (RÚV, mbl, fbl, dv) Félag íslenskra tónlistarmanna (FÍT) er fagfélag íslenskra einleikara, einsöngvara og stjórnenda. Tilgangur þess er að gæta hagsmuna félagsmanna sinna og samkvæmt lögum félagsins ber félaginu að beita sér fyrir vandaðri tónlistarumfjöllun í fjölmiðlum. Framhaldsaðalfundur FÍT haldinn 21. september 2009 vill hvetja til samvinnu og samráðs við félagið um tónlistarumfjöllun þannig að saman megi fara hagur neytenda, fjölmiðla og tónlistarmanna um áhugaverða og ítarlega umfjöllun á þessum vettvangi.
|
11.9.2009 |
Almennt efni
| kmjoll
Michala Petri-Lars Hannibal í Norræna húsinu 16.september
Þriðju tónleikar í tónleikaröð Félags íslenskra tónlistarmanna og Norræna hússins “Klassík í Vatnsmýrinni” verða haldnir miðvikudaginn 16. september kl 20.00. Á tónleikunum kemur fram einn frægasti blokkflautuleikari heims Michala Petri ásamt eiginmanni sínum Lars Hannibal gítarleikara. Á efnisskránni eru verk eftir J. S. Bach, A. Vivaldi, Astor Piazzolla, Michölu Petri og marga fleiri. Tónleikarnir verða endurteknir í Hömrum á Ísafirði kvöldið eftir, 17. september kl. 20:00, í samvinnu við Tónlistarfélag Ísafjarðar. Michala Petri blokkflautuleikari, er einn af fremstu hljóðfæraleikurum í heiminum í dag. Hún hefur komið fram á nærri fjögur þúsund tónleikum í fjórum heimsálfum og hlotið fjölmörg verðlaun fyrir leik sinn, m.a. dönsku Lumbye verðlaunin fyrir framlag sitt við að koma klassískri tónlist á framfæri við almenning. Listræn sköpun hennar og mikil færni hefur glatt og heillað áheyrendur um allan heim. Lars Hannibal lærði á gítar við konservatoríið í Árósum og lútu hjá Toyohiko Satoh í Den Haag á árunum 1972-1980. Hann hefur aðallega unnið sem kammertónlistarmaður í samstarfi við tónlistarmenn um allan heim. Árið 1991 hlaut hann FTF menningarverðlaunin og árið 1993 Dansk Solist-Forbunds Jubilæums verðlaunin. Samstarf þeirra Michölu Petri og Lars Hannibal, eiginmanns hennar, hófst árið 1992 með tónleikum í klaustrinu La Cartuja de la Sierra í Andalúsíu á Spáni. Síðan hafa þau leikið yfir þúsund tónleika saman í Evrópu, Norður- og Suður-Ameríku, Japan, Kína og Kóreu. Efnisskrá þeirra spannar allt frá endurreisnartónlist, barokk, klassískri og rómantískri tónlist, til nútímatónlistar sem hefur verið samin sérstaklega fyrir þau. Þau hafa gefið út geisladiskana Souvenir, Air og Kreisler Inspirations með rómantískum umritunum fyrir blokkflautu og gítar sem árið 2002 hlaut þýsku Grammy verðlaunin. Í nóvember 2006 stofnuðu þau eigið hljómlötufyrirtæki, OUR recordings, og gáfu út geisladiskinn Siesta með latin-skotinni tónlist. Í október 2009 kemur út diskurinn Café Vienna þar sem dúóið leikur tónlist frá dögum Beethovens. Samræða, samneyti og tjáning eru lykilorð í tónlistariðkun Michölu Petri og Lars Hannibal. Samfelld samræða – með sjálfum sér, með hvort öðru og við áheyrendur – er áríðandi hluti af flutningi þar sem tónlistin er ekki bara nótur á blaði. Tónleikarnir eru haldnir í samvinnu við Dansk Solist-forbund með styrk frá Norræna menningarsjóðnum og Dansk-íslenska samstarfssjóðnum.
Um tónleikaröðina Félag íslenskra tónlistarmanna hóf í upphafi árs 2009 samstarf við Norræna húsið um tónleikaröð með áherslu á norrænt og alþjóðlegt samstarf. Tilgangurinn með tónleikaröðinni er að gefa áheyrendum tækifæri til að hlýða á fyrsta flokks innlenda og erlenda listamenn með áherslu á “sólistann” annars vegar og “kammertónlist” hins vegar. Tónleikarnir verða ávallt á miðvikudagskvöldum og eru fernir á starfsárinu 2009, tvennir með íslenskum flytjendum og tvennir með norrænum flytjendum fyrir samvinnu FÍT við norræn einleikarafélög í Nordisk Solistråd. Miðaverði er stillt í hóf og er sérstaklega reynt að hvetja til aðsóknar ungs fólks með því að veita þeim frían aðgangseyri. Stjórn tónleikaraðarinnar sér um framkvæmd og skipulagningu auk listrænnar stjórnunar. Tónleikastjórn skipa: Laufey Sigurðardóttir, Hallveig Rúnarsdóttir og Jón Sigurðsson.
Tónleikar síðar á árinu: Miðvikudagur 21. október kl. 20:00 “Fegurð flautunnar” - Einleikstónleikar: Martial Nardeau, þverflauta
|
11.9.2009 |
Almennt efni
| kmjoll
Tónlistarsetrið Selið á Stokkalæk
Eins og ýmsum ykkar mun vera kunnnugt var opnað tónlistarsetur á Stokkalæk á Rangárvöllum 4. júlí sl., sem kallað er Selið á Stokkalæk. Þann dag voru tvennir opnunartónleikar þar sem fram komu píanóleikararnir Víkingur Heiðar Ólafsson og Halla Oddný Magnúsdóttir auk Huldu Jónsdóttur fiðluleikara. Síðan hafa nokkrir tónleikar verið haldnir í Selinu, söngur, píanó og flauta, og hópar tónlistarmanna hafa dvalið við æfingar nokkra daga í senn. Framundan eru meistarnámskeið í píanóleik, upptaka fyrir geisladisk með fiðlu og sellói og tónleikar, meðal annars vígsla Víkings á nýjum Steinway-flygli sem hann hefur valið fyrir Selið. Þá er í undirbúningi Sveinbjörns Sveinbjörnssonar hátíð í febrúar á næsta ári en Nína Margrét Grímsdóttir píanóleikari er listrænn stjórnandi hennar. Nýlega var opnuð heimasíðu fyrir Selið á Stokkalæk, stokkalækur.is. Þar sést meðal annars að tilgangur þessa tónlistarseturs er fyrst og fremst sá að styrkja unga tónlistarnema í klassískri tónlist til að efla færni sína og menntun og veita bæði þeim og öðru tónlistarfólki færi á að iðka tónlist sína, æfa og halda tónleika, í fögru umhverfi fjarri ys og þys þéttbýlisins. Annars vegar verður nokkrum dvalarstyrkjum úthlutað árlega til þeirra sem áhuga hafa á að skipuleggja og standa fyrir meistarnámskeiðum og til ungra tónlistarmanna sem eru að hefja feril sinn sem atvinnumenn í klassískri tónlist, til æfinga og tónleikahalds. Hins vegar verður öðru tónlistarfólki leigður staðurinn til æfinga, tónleikahalds og upptöku gegn vægu gjaldi. Í Selinu á Stokkalæk, sem byggt var sem fjós, eru átta tveggja manna herbergi með baði og er Kawai píanó í hverju herbergi. Í setustofu, sem getur rúmað 70 manns í sæti á tónleikum, er nýr Steinway flygill eins og áður sagði. Í húsinu er fullbúið eldhús þar sem gestir geta matreitt sjálfir og í Selinu er raunar að finna allan nauðsynlegan útbúnað til dvalar og tónlistariðkunar eins og nánar má lesa um á heimasíðunni og við hvetjum ykkur eindregið til að kynna ykkur. Tengd Selinu er stór óeinangruð hlaða, sem vel má nýta að sumarlagi, til dæmis fyrir tónleika, listsýningar eða hvers konar samveru. Þá er í litlu dalverpi í fimm mínútna göngufjarlægð frá Selinu gamalt Klakhús, sem hefur verið innréttað sem sumarhús. Þar er svefnpokapláss fyrir fjóra, baðherbergi og eldunaraðstaða. Við erum hvenær sem er reiðubúinn til að sýna ykkur staðinn, sem ef til vill gæti nýst ykkur eða skjólstæðingum ykkar. Þá væri ekki verra að sjá ykkur á tónleikum hér en Selið á Stokkalæk er í 100 km fjarlægð frá Rauðavatni í Reykjavík. Til að fylgjast með tónleikum í Selinu er einfaldast að skrá sig á póstlista á heimasíðunni. Með bestu kveðjum, Inga Ásta og Pétur Hafstein

|
9.9.2009 |
Almennt efni
| kmjoll
Styrkir úr Borgarsjóði - Umsóknarfrestur 1. október
Reykjavíkurborg veitir ár hvert félagasamtökum, fyrirtækjum og einstaklingum styrki til starfsemi og þjónustu sem fellur að hlutverki sveitarfélagsins eða telst á annan hátt í samræmi við stefnumörkun, áherslur og forgangsröðun borgaryfirvalda. Styrkirnir eru ætlaðir viðburðum eða verkefnum sem koma til framkvæmda á næsta ári. Viðburðir eða verkefni eru ekki styrkt eftir á. Styrkveiting felur ekki í sér fyrirheit um frekari skuldbindingar af hálfu Reykjavíkurborgar nema gerður sé sérstakur samningur þess efnis. Umsókn skal berast eigi síðar en 1. október 2009. Einungis eru teknar til greina umsóknir sem berast innan tilskilins frests og uppfylla þær kröfur sem reglur Reykjavíkurborgar kveða á um. Þeir aðilar sem fengi hafa styrk áður þurfa að skila inn greinargerð um ráðstöfnun þess fjár. Sjá nánar hér
|
9.9.2009 |
Almennt efni
| kmjoll
Starfslaun listamanna - Umsóknarfrestur til 19. október
Hér með eru auglýst til umsók |