Aðalfundur FÍT var haldinn í Vestursal FÍH í Rauðagerði 27 þann 27. maí síðastliðinn. Fundurinn hófst kl. 18:30 með útnefningu á nýjum heiðursfélaga, Rutar Ingólfsdóttur fiðluleikara. Þá var úthlutað styrkjum úr Hljómdiskasjóði félagsins og til Tónleika á landsbyggðinni 2010.
Venjuleg aðaflundarstörf hófust kl. 19:30. Fundarstjóri var Anna Sigríður Helgadóttir, fundarritari Margrét Bóasdóttir og fundarmenn 11 samtals að stjórn meðtalinni. Aðalfundargerð frá 2009 var borin upp til samþykktar en þá var komið að skýrslu formanns. Kristín Mjöll Jakobsdóttir rakti helstu störf stjórnar á árinu og sagði fá því sem er á döfinni á næstunni. Látinna félaga á síðasta ári var minnst með einnar mínútu þögn. Reikningar félagsins voru bornir upp og samþykktir, 6 nýjum félagsmönnum var veitt innganga. Þeir eru: Víkingur Heiðar Ólafsson, Sólveig Samúelsdóttir, Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, Herdís Anna Jónasdóttir, Eyþór Ingi Jónsson og Ásdís Hildur Runólfsdóttir. Sitjandi stjórn gaf áfram kost á sér og var hún samþykkt einróma. Tveir nýir varastjórnarmenn voru kjörnir: Þórarinn Stefánsson og Anna Sigríður Helgadóttir en Daníel Þorsteinsson og Sólveig Anna Jónsdóttir gengu úr varastjórn. Skoðunarmenn reikninga voru endurkjörnir. Þá var samþykkt tillaga stjórnar um að stjórn fengi umboð til að velja fulltrúa félagsins í úthlutunarnefnd Launasjóðs tónlistarflytjenda. Vigdís Klara Aradóttir verkefnisstjórin landsbyggðartónleika flutti skýrslu. Kristín Mjöll hafði framsögu að umræðum um fjármál félagsins en um það spunnust nokkrar umræður. Tillaga stjórnar um hækkun félagsgjalda í 7.000 kr var samþykkt. Stjórn var falið að ljúka ályktun til fjölmiðla samkvæmt tillögu aðalfundar. Aðalfundargerð, skýrsla formanns og samþykkt ályktun verða sendar félagsmönnum í tölvupósti á næstunni.