Sólarströnd ferðalög ferðir borgarferðir golf Golf golfferðir ferðaleit ferðavefur FÍH leikur fréttir tilboð Sértilboð hótel flug flugferðir

02 jún. 2010 kl. 21:32 | Almennt efni | kmjoll
Rut Ingólfsdóttir kjörin nýr heiðursfélagi

Á aðalfundi félagsins 27. maí síðastliðinn var Rut Ingólfsdóttir útnefnd heiðurfélagi F.Í.T. Hún er tuttugasti heiðursfélagi F.Í.T. útnefndur frá upphafi en alls eru átta eftirlifandi heiðursfélagar í félaginu. Hún hlaut skrautritað heiðursfélagaskjal FÍT og blómvönd af því tilefni og Hallveig Rúnarsdóttir, stjórnarmaður, fór yfir lífshlaup Rutar:

Rut Ingólfsdóttir fiðluleikara
Rut stundaði fiðlunám í Reykjavík frá unga aldri undir handleiðslu Ruthar Hermanns, Einar G. Sveinbjörnssonar og Björns Ólafssonar. Erlendis stundaði Rut nám við tónlistarháskólana í Málmey í Svíþjóð og Brussel í Belgíu, þar sem André Gertler var kennari hennar og lauk hún prófi þaðan með láði árið 1969.
Rut hefur svo sannarlega látið að sér kveða í íslensku tónlistarlífi. Hún var fastráðin í Sinfóníuhljómsveit Íslands til margra ára og um tíma einn af konsertmeisturum hennar. Einnig var hún konsertmeistari með Pólýfónkórnum og fleiri kórum, kennari við Tónlistarskólann í Reykjavík og leiðari í Reykjavíkurkvartettnum. Þá er ótalið farsælt starf hennar í Skálholti en hún er meðlimur í Bachsveitinni í Skálholti og Skálholtskvartettinum.
Stærsta afrek Rutar á starfsferlinum er þó líklegast óeigingjarnt og árangursríkt starf með Kammersveit Reykjavíkur. Hún stofnaði sveitina árið 1974 ásamt 12 hljóðfæraleikurum, sem flestir voru nýkomnir heim frá námi erlendis og störfuðu í Sinfóníuhljómsveit Íslands og við Tónlistarskólann í Reykjavík. Markmiðið með stofnun hennar var að gefa áheyrendum kost á reglulegum tónleikum með kammertónlist, allt frá barokktímanum til nútímans, og um leið að gefa hljóðfæraleikurunum tækifæri til að glíma við áhugaverð verkefni. 
Rut var formaður sveitarinnar frá upphafi 1974 þar til hún afhenti það kefli til Guðrúnar Hrundar Harðardóttur á síðasta ári. Samhliða formennskunni var Rut fyrsti fiðluleikari sveitarinnar þennan tíma og kom einnig margoft fram sem einleikari. Undir styrkri stjórn Rutar hefur starf Kammersveitar Reykjavíkur blómstrað og hróður hennar borist víða um lönd ásamt því að vera burðarstoð í tónlistarlífi hér á Íslandi.
Rut hefur einnig náð glæstum árangri sem einleikari. Hún hefur komið fram á tónleikum um allan heim, á Norðurlöndum og víða í Evrópu,  Kína og í Japan. Rut hefur einnig verið dugleg að halda tónleika hér innanlands, og einnig tekið virkan þátt í því að vekja áhuga íslenskra barna á fiðlunni og klassískri tónlist.
Hún hefur frumflutt fjölmörk verk eftir íslenska höfunda ásamt því að flytja helstu perlur tónbókmenntanna fyrir einleiksfiðlu og starfað með flestu af okkar fremsta tónlistarfólki.
Rut hefur margoft hlotið viðurkenningu fyrir störf sín að tónlistarmálum, t.d. Menningarverðlaun DV 1989, viðurkenningu STEFs fyrir kynningu og flutning á verkum Jóns Leifs 1991; hún var sæmd hinni íslensku fálkaorðu 1990 og árið 2007 hlaut Rut einnig riddarakross franska ríkisins fyrir kynningu og flutning á franskri tónlist á Íslandi.

 

Félag íslenskra tónlistarmanna, Rauðagerði 27, 108 Reykjavík, Sími: 588-8255, fiston@fih.is