Sólarströnd ferðalög ferðir borgarferðir golf Golf golfferðir ferðaleit ferðavefur FÍH leikur fréttir tilboð Sértilboð hótel flug flugferðir

22 júl. 2010 kl. 17:22 | Almennt efni | kmjoll
Auglýst eftir tónlistaratriðum á Bókasýninguna í Frankfurt
ÚTÓN, í samstarfi við Sagenhaftes Island, auglýsir eftir tónlistaratriðum fyrir Bókasýninguna í Frankfurt 2011 en þar verður Ísland sérstakur heiðursgestur. Þarna gefst ekki einungis einstakt tækifæri til að koma á framfæri íslenskri bókmenningu heldur líka til að kynna íslenska tónlist. Leitað er eftir atriðum úr öllum tónlistarstefnum. Miðað er við að tónleikar yrðu haldnir í september/október 2011. Sérstaklega er horft til þess að viðkomandi verkefni hafi tengsl í Þýskalandi og vinni að hugsanlegri útgáfu og tónleikabókunum með þýskum aðilum til að sem bestur árangur náist.
Umsóknir skulu innihalda:
Ferilskrá
Aðgang að tóndæmum á stafrænu formi.
Skilafrestur er 5. ágúst og umsóknum skal skila til Kamillu Ingibergsdóttur, verkefnastjóra hjá ÚTÓN, á kamilla@icelandmusic.is eða í Borgartún 35, 105 Reykjavík. Nánari upplýsingar veitir Kamilla í síma 863-3499.
Kær kveðja,
Kamilla
Félag íslenskra tónlistarmanna, Rauðagerði 27, 108 Reykjavík, Sími: 588-8255, fiston@fih.is