Sólarströnd ferðalög ferðir borgarferðir golf Golf golfferðir ferðaleit ferðavefur FÍH leikur fréttir tilboð Sértilboð hótel flug flugferðir

      

 

Fréttir
22.7.2010 | Almennt efni | kmjoll
Auglýst eftir tónlistaratriðum á Bókasýninguna í Frankfurt
ÚTÓN, í samstarfi við Sagenhaftes Island, auglýsir eftir tónlistaratriðum fyrir Bókasýninguna í Frankfurt 2011 en þar verður Ísland sérstakur heiðursgestur. Þarna gefst ekki einungis einstakt tækifæri til að koma á framfæri íslenskri bókmenningu heldur líka til að kynna íslenska tónlist. Leitað er eftir atriðum úr öllum tónlistarstefnum. Miðað er við að tónleikar yrðu haldnir í september/október 2011. Sérstaklega er horft til þess að viðkomandi verkefni hafi tengsl í Þýskalandi og vinni að hugsanlegri |Meira|
2.6.2010 | Almennt efni | kmjoll
Rut Ingólfsdóttir kjörin nýr heiðursfélagi

Á aðalfundi félagsins 27. maí síðastliðinn var Rut Ingólfsdóttir útnefnd heiðurfélagi F.Í.T. Hún er tuttugasti heiðursfélagi F.Í.T. útnefndur frá upphafi en alls eru átta eftirlifandi heiðursfélagar í félaginu. Hún hlaut skrautritað heiðursfélagaskjal FÍT og blómvönd af því tilefni og Hallveig Rúnarsdóttir, stjórnarmaður, fór yfir lífshlaup Rutar:

Rut Ingólfsdóttir |Meira|

2.6.2010 | Almennt efni | kmjoll
Úthlutun úr hljómdiskasjóði 2010

Á aðalfundi félagsins 27. maí síðastliðinn var afhentur einn styrkur úr Hljómdiskasjóði að upphæð 200.000 kr. Hann hlaut: 
Ástríður Alda Sigurðardóttir til að hljóðrita píanóverk eftir Chopin.

2.6.2010 | Almennt efni | kmjoll
Styrkveitingar til landsbyggðartónleika 2011

Á aðalfundi félagsins 27. maí síðastliðinn var úthlutað styrkjum til félagsmanna F.Í.T. og FÍH til tónleikahalds á landsbyggðinni 2011. Alls bárust 29 umsóknir sem komu til umsagnar úthlutunarnefndar. Átta tónlistarmenn og hópar hlutu styrk til landsbyggðartónleika 2011:
Einleikur:
Ástríður Alda Sigurðardóttir, píanó
Edda Erlendsdóttir, píanó
Dúó:
Þórunn Ósk Marinósdóttir, víóla, Kristinn Örn Kristinsson, píanó
Ari Þór Vilhjálmsson, fiðla, |Meira|

2.6.2010 | Almennt efni | kmjoll
Fréttir af aðalfundi 2010

Aðalfundur FÍT var haldinn í Vestursal FÍH í Rauðagerði 27 þann 27. maí síðastliðinn. Fundurinn hófst kl. 18:30 með útnefningu á nýjum heiðursfélaga, Rutar Ingólfsdóttur fiðluleikara. Þá var úthlutað styrkjum úr Hljómdiskasjóði félagsins og til Tónleika á landsbyggðinni 2010.
Venjuleg aðaflundarstörf hófust kl. 19:30. Fundarstjóri var Anna Sigríður Helgadóttir, fundarritari Margrét Bóasdóttir og fundarmenn 11 samtals að stjórn |Meira|

Félag íslenskra tónlistarmanna, Rauðagerði 27, 108 Reykjavík, Sími: 588-8255, fiston@fih.is