Til umhugsunar við umsóknir
Styrkir og samstarfssjóðir á vegum hins opinbera
Tónlistarsjóður Hlutverk tónlistarsjóðs er að efla íslenska tónlist og stuðla að kynningu á íslenskum tónlistarmönnum og tónsköpun þeirra. Sjóðurinn skiptist í tvær deildir, tónlistardeild og markaðs- og kynningardeild. Úthlutun fer fram tvisvar sinnum á ári, í júní og nóvember að jafnaði.
Starfslaun listamanna eru veitt úr fjórum sjóðum: Launasjóði myndlistarmanna, Launasjóði rithöfunda, Tónskáldasjóði og Listasjóði. Auglýst er eftir umsóknum einu sinni á ári (að hausti).
Listir og önnur menningarmál Styrkir Menntamálaráðuneytis veittir til verkefna á sviði menningarmála sem falla ekki undir aðra sjóði eða fjárveitingar á vegum ríkisins. Umsóknir eru afgreiddar í febrúar, apríl, júní, ágúst, október og desember.
Styrkir til starfsemi atvinnuleikhópa Leiklistarráð velur úr umsóknum um styrki til einstakra verkefna eða samfellds starfs til lengri tíma (leikhús, ópera, dans). Síðasti umsóknarfrestur var 2. október 2007.
Þjóðhátíðarsjóður Tilgangur sjóðsins er að veita styrki til stofnana og annarra aðila, er hafa það verkefni að vinna að varðveislu og vernd þeirra verðmæta lands og menningar, sem núverandi kynslóð hefur tekið í arf. Styrkir úr Þjóðhátíðarsjóði eru nú auglýstir til umsóknar í byrjun júlí ár hvert og er umsóknarfrestur til loka ágústmánaðar.
Barnamenningarsjóður Hlutverk Barnamenningarsjóðs er að styrkja verkefni á sviði barnamenningar sem unnin eru fyrir börn og/eða með virkri þátttöku þeirra. Auglýst er eftir umsóknum í sjóðinn fyrri hluta árs. Næsti umsóknarfrestur 15. október 2007.
Menningarsjóður félagsheimila Hlutverk sjóðsins er að stuðla að menningarstarfi í félagsheimilum og öðrum þeim stöðum sem henta menningarstarfi. Menningarsjóðsnefnd úthlutar styrkjum úr sjóðnum fjórum sinnum á ári. Umsóknarfrestir eru 15. febrúar, 15. maí, 1. september og 15. nóvember ár hvert.
Menningarsjóður Íslands og Finnlands Tilgangur sjóðsins er að efla menningartengsl Finnlands og Íslands. Í því skyni veitir sjóðurinn árlega ferðastyrki og annan fjárstuðning.
Sænsk-íslenski samstarfssjóðurinn Veitt er úr sjóðnum til samstarfs á breiðum grundvelli; til vísinda, félagsstarfs, kennslumála og fleira en þó einkum til menningarmála. Úr sjóðnum er veitt einu sinni á ári (mars-apríl).
Sjóðurinn fyrir danskt-íslenskt samstarf Markmið sjóðsins er að efla skilning og samstarf á milli Danmerkur og Íslands, m.a. á menningarsviðinu. Veittir eru styrkir til atvinnu- og námsdvalar í löndunum, til fagmenntunar, til gestaleiksýninga, myndlistarsýninga auk annarrar starfsemi sem getur vakið áhuga á löndunum. Umsóknarfrestir: 15. apríl og 15. október.
Grænlandssjóður Hlutverk Grænlandssjóðs er að stuðla að nánari samskiptum Íslendinga og Grænlendinga og veitir sjóðurinn styrki til kynnisferða, námsdvalar, listsýninga, íþróttasýninga og annarra málefna á sviði lista, vísinda og tæknimála.