Sólarströnd ferðalög ferðir borgarferðir golf Golf golfferðir ferðaleit ferðavefur FÍH leikur fréttir tilboð Sértilboð hótel flug flugferðir

   Sebastiano Brusco

   Natalia Benedetti

   Laufey og Elísabet

     Hlíf Sigurjónsdóttir

Klassík í Vatnsmýrinni

Klassík í Vatnsmýrinni er tónleikaröð Félags íslenskra tónlistarmanna í samvinnu við Norræna húsið með áherslu á norrænt og alþjóðlegt samstarf. Markmiðið með tónleikaröðinni er að gefa áheyrendum tækifæri til að hlýða á fyrsta flokks innlenda og erlenda listamenn með áherslu á “einleikarann” annars vegar og “kammertónlist” hins vegar. Til ánægjuauka fjalla flytjendur um efniskrána á tónleikunum. 

Starfsárið 2010 býður upp á tónleika með erlendum einleikurum í samvinnu við norræn einleikarafélög, ítalska tónleikahaldara og með íslensku listafólki úr röðum félagsmanna. Í ár er innan vébanda tónleikaraðarinnar haldin norræn tónlistarhátíð dagana 10.-12. júní í tilefni af 70 ára afmæli FÍT.

Tónleikarnir eru að jafnaði á miðvikudagskvöldum. Aðgangseyrir á tónleikana er 1.500 kr og er sérstaklega hvatt til aðsóknar ungs fólks með því að veita öllum undir 21 árs aldri ókeypis aðgang að tónleikunum.

Stjórn tónleikaraðarinnar sér um framkvæmd og skipulagningu auk listrænnar stjórnunar. Tónleikastjórn skipa: Sigurður Bragason, Guðrún Sigríður Birgisdóttir og Jón Sigurðsson.

Tonleikar 2010:

Miðvikudagur 24. mars kl. 20:00
“Gestir frá Ítalíu”
Natalía Benedetti, klarinett
Sebastiano Brusco, píanó

Suður mætir Norðri - Norræn tónlistarhátíð 10. – 12. júní
í samstarfi við Nordisk solistråd með styrk frá Norrænu menningargáttinni
Fimmtudagur 10. júní kl. 20:00
Föstudagur 11. júní kl. 20:00
“NordSol” tónleikar 
Einleikarar frá Norðurlöndum
Laugardagur 12. júní kl. 16:00
“Tangó tekur völdin”
Tónleikar úr smiðju Olivier Manoury

Miðvikudagur 22. september kl. 20:00
“Strengleikar”
Laufey Sigurðardóttir, fiðla
Elísabet Waage, harpa

Miðvikudagur 20. október kl. 20:00
“Hrosshár í strengjum...”
Hlíf Sigurjónsdóttir, fiðla

 

Klassík í Vatnsmýrinni 2009

Klassík á Kjarvalsstöðum 2008

Félag íslenskra tónlistarmanna, Rauðagerði 27, 108 Reykjavík, Sími: 588-8255, fiston@fih.is