Sólarströnd ferðalög ferðir borgarferðir golf Golf golfferðir ferðaleit ferðavefur FÍH leikur fréttir tilboð Sértilboð hótel flug flugferðir

Um F.Í.T.

F.Í.T. er fagfélag íslenskra tónlistarmanna. Það er skipað 159 félagsmönnum (2009) sem greiða árgjald til félagsins. Félagið er skipað fimm manna stjórn sem fundar með reglulegu millibili. Aðalfundir eru haldnir á vorin og er þá nýjum félögum veitt innganga með samþykki aðalfundar.
Tilgangur félagsins er að gæta hagsmuna félagsmanna sinna og koma fram fyrir þeirra hönd í baráttumálum þeirra; vinna að framgangi tónlistar- og menningarlífs á Íslandi, m.a. í samstarfi við önnur félagasamtök með samskonar markmið, með því að stuðla að eða stofna til verkefna í samvinnu við menningarstofnanir; leita nýrra sóknarfæra í krafti félagsheildarinnar o.fl.

Hverjir geta verið í félaginu?

Félagsmenn geta orðið tónlistarmenn (einleikarar; einsöngvarar; stjórnendur) sem uppfylla eftirtalin skilyrði:
Viðkomandi skal hafa stundað ítarlegt tónlistarnám (háskólanám eða sambærilegt), vera virkur í íslensku tónlistarlífi og hafa hlotið ótvíræða viðurkenningu fyrir tónlistarstörf sín.

Núverandi stjórn F.Í.T. vill hvetja alla tónlistarmenn sem telja sig falla undir þessa skilgreiningu til að sameinast í F.Í.T. Nýir félagar eru aðeins teknir inn á aðalfundi félagsins. Umsóknum þar sem fram kemur menntun og helstu störf á tónlistarsviðinu má senda í netpósti til félagsins, senda til eða skila á skrifstofu F.Í.T. að Rauðagerði 27, eða til stjórnarmanna, fyrir aðalfund.

Umsóknareyðublað

Félag íslenskra tónlistarmanna, Rauðagerði 27, 108 Reykjavík, Sími: 588-8255, fiston@fih.is