Sólarströnd ferðalög ferðir borgarferðir golf Golf golfferðir ferðaleit ferðavefur FÍH leikur fréttir tilboð Sértilboð hótel flug flugferðir

Nokkur tónleikahús á landsbyggðinni:

           Tónlistarhúsið Laugarborg í Eyjafjarðarsveit

           Stykkishólmskirkja

         Í Duus í Reykjanesbæ

          Gunnarsstofnun að Skriðuklaustri

 

Tónleikar á landsbyggðinni

Samstarfsverkefni F.Í.T. og FÍH með styrk úr Tónlistarsjóði.
Markmið verkefnisins er að styrkja tónleikahald á landsbyggðinni.

Verkefnið hófst árið 1982 að frumkvæði F.Í.T. Það leggur sérstaka áherslu á flutning sígildrar tónlistar með færustu tónlistarmönnum landsins. Árið 2005 var því breytt í samstarfsverkefni við FÍH, með auknum styrk úr Tónlistarsjóði og viðbótarframlagi FÍH. Jafnframt er nú einnig boðið upp á tónleikadagskrár þar sem ýmsum tónlistarstefnum er fléttað saman með sígildri tónlist. Félagsmenn sækja um þátttöku og valnefnd velur tónlistarhópa fyrir hvert starfsár. Verkefnið greiðir helming þóknunar tónlistarmanna á móti samstarfsaðilum á landsbyggðinni. Samstarfsaðilar velja sér tónleikadagskrár, annast skipulagningu og kynningu tónleikanna og greiða ferðir og uppihald.

Hér fyrir ofan er ljósmynd frá úthlutun á aðalfundi félagsins 10. júní síðastliðinn vegna landsbyggðartónleika 2010. 

Félag íslenskra tónlistarmanna, Rauðagerði 27, 108 Reykjavík, Sími: 588-8255, fiston@fih.is