Hljómdiskasjóður
Félagið úthlutar árlega úr Hljómdiskasjóði til félagsmanna. Veittir eru tveir til fimm styrkir á ári eftir fjármagnsstöðu sjóðsins. Fjármagn sjóðsins kemur frá SFH, Sambandi flytjenda og hljómplötuframleiðenda, en F.Í.T.fær árlegt prósentuhlutfall af greiðslum fjölmiðla og fleiri aðila vegna tónlistarflutnings af markaðshljóðritum á opinberum vettvangi.
Úthlutað var úr Hljómdiskasjóði í sextánda sinn á aðalfundi félagsins 10. júní síðastliðinn (2009). Eftirfarandi listamenn fengu útgáfustyrk úr sjóðnum:
1. Elfa Rún Kristinsdóttir, fiðluleikari (með hljómsveit)
2. Kristinn H. Árnason, gítarleikari (einleikur)

Frá vinsri: Kristinn Örn Kristinsson, faðir Elfu Rúnar, og Kristinn H. Árnason