Sólarströnd ferđalög ferđir borgarferđir golf Golf golfferđir ferđaleit ferđavefur FÍH leikur fréttir tilbođ Sértilbođ hótel flug flugferđir

Spjall

Nýjustu greinar eru efst

 

TÓNLISTARVEISLA Á KIRKJULISTAHÁTÍĐ 11.-19. ÁGÚST    7.8.2007 16:51:19 

Tvö stćrstu verk kirkjutónbókmentanna verđa flutt á hátíđinni. Messa í h-moll eftir Bach og óratórían Ísrael í Egyptalandi eftir Handel. Messa í h-moll eftir Bach Flytjendur: Robin Blaze kontratenór, Monika Frimmer sópran, Gerd Türk tenór og Peter Kooij bassi. Alţjóđlega barokksveitin í Den Haag og Mótettukór Hallgrímskirkju. Stjórnandi: Hörđur Áskelsson. 11. og 12. ágúst í Hallgrímskirkju 13. ágúst í Skálholtsdómkirkju Miđaverđ: 4.900/3.600 Ísrael í Egyptalandi eftir Handel Flytjendur: Robin Blaze kontratenór, Kristín Erna Blöndal sópran, Ţórunn Vala Valdimarsdóttir sópran, Elfa Margrét Ingvadóttir, sópran, Alex Ashworth baritón, Benedikt Ingólfsson bassi. Alţjóđlega barokksveitin í Den Haag og kammerkórinn Schola cantorum. Stjórnandi: Hörđur Áskelsson. Miđaverđ: 4.900/3.600 Rannsóknarhópurinn Deus ex cinema hefur starfađ međ Kirkjulistahátíđ í tvö skipti viđ góđar undirtektir. Ađkoma hópsins ađ Kirkjulisthátíđ í ár er tvíţćtt. Í fyrsta lagi verđur kvikmyndin Vier Minuten sem hlaut kvikmyndaverđlaun kirkjunnar áriđ 2006 sýnd í Tjarnarbíói og fjallađ um hana í tengslum viđ ţá sýningu. Í öđru lagi verđi ljósi varpađ á danska kvikmyndagerđarmanninn Carl Theodor Dreyer. Sú dagskrá er tvískipt. Annars vegar málţing um kvikmyndagerđ Dreyer og áhrif hans í kvikmyndasögunni og sýnd nokkur myndbrot úr myndum hans. Hins vegar verđur ein af hans frćgustu ţöglu myndum, Jóhanna af Örk sýnd á stóru tjaldi undir orgelinu í Hallgrímskirkju, viđ spuna og frumsamda tónlist organistans Wilfried Kaets frá Ţýskalandi sem hefur sérhćft sig í tónlist viđ ţöglar trúarlegar kvikmyndir. Sálmafoss! Sálmaveisla í Hallgrímskirkju er yfirskrift viđamikillar dagskrár sem fer fram á Kirkjulistahátíđ í Hallgrímskirkju á Menningarnótt í Reykjavík 18. ágúst nk. Dagskráin sem hefst kl.15.00 og stendur til kl.21.00 samanstendur af sálmaflutningi frá ýmsum stíltímabilum auk ţess sem fjórir nýir íslenskir sálmar verđa frumfluttir. Nýju sálmarnir voru pantađir af Tónmenntasjóđi kirkjunnar ađ frumkvćđi Harđar Áskelssonar söngmálastjóra ţjóđkirkjunnar. Í stjórn Tónmenntasjóđs eru auk Harđar, Jón Nordal tónskáld og Ađalsteinn Ásberg Sigurđsson rithöfundur. Síđast en ekki síst munu nýsköpun og gjörningar ungs listafólks á Listvöku unga fólksins skipa stóran sess á hátíđinni en Helgi Hrafn Jónsson, básúnuleikari og söngvari, hefur umsjón međ Listvöku unga fólksins á hátíđinni í ár. Eins og á undanförnum hátíđum verđa einnig á dagskrá á stuttar hádegiskyrrđarstundir međ ritningarlestrum og tónlistarflutningi auk hátíđarmessu í Hallgrísmkirkju sunnudaginn 12. ágúst og sunnudaginn 19. ágúst. Miđasala á hátíđina er hafin á midi.is. Allar nánari upplýsingar er ađ finna á vef Kirkjulistahátíđar www.kirkjulistahatid.is

- Ekki skráđ - /  
Jólatónleikar í Neskirkju    21.12.2006 15:15:46 

Jólatónleikar í Neskirkju Rossini, Bach og Mozart Fimmtudaginn 28. desember heldur kammersveitin Aţena jólatónleika í Neskirkju í Reykjavík. Á efnisskrá eru Sónata nr. 1 í G-dúr eftir Rossini, Hljómsveitarsvíta í h-moll BWV 1067 eftir J.S. Bach og Divertimento í F-dúr KV. 247 eftir Mozart. Tónleikarnir hefjast klukkan 17:00. Einnig leikur kammersveitin viđ messu í Neskirkju á jóladag sem hefst klukkan 14:00 Kammersveitina Aţenu skipa hljóđfćraleikarar sem flestir eru fastráđnir viđ Sinfóníuhljómsveit Íslands, hafa ćft saman undanfarin ár og leikiđ á tónleikum viđ ýmis tćkifćri. Ţetta eru fyrstu tónleikar sveitarinnar undir ţessu nafni og marka ţeir upphaf ađ skipulögđum tónlistarflutningi. Á tónleikunum í Neskirkju leika ţau: Hlíf Sigurjónsdóttir, Dóra Björgvinsdóttir, Gunnhildur Dađadóttir, Hlín Erlendsdóttir, Ólöf Ţorvarđsdóttir, Sigurlaug Eđvaldsdóttir, Sarah Buckley, Sesselja Halldórsdóttir, Júlía Mogensen, Lovísa Fjeldsted, Ţórir Jóhannsson, Anna Sigurbjörnsdóttir og Emil Friđfinnsson. Sérstakir gestir á ţessum tónleikum eru Freyr Sigurjónsson flautuleikari og Daniel Carranza gítarleikari sem báđir búa og starfa í Bilbao á Spáni. Freyr Sigurjónsson hefur starfađ sem fyrsti flautuleikari í Sinfóníuhljómsveit Bilbao frá árinu 1982, en ţá hafđi hann nýlokiđ framhaldsnámi frá Royal Northern College of Music í Manchester. Freyr hefur víđa komiđ fram međ kammersveitum og sem einleikari međ hljómsveitum. Hann er fastráđinn kennari í flautuleik viđ Tónlistarskólann í Bilbao, en hefur einnig haldiđ fjölda meistaranámskeiđa á Spáni, međal annars í Santander, Burgos og Sevilla. Íslenskum tónlistarunnendum gafst kostur á ađ hlýđa á flautuleik Freys á tvennum tónleikum í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar á liđnu sumri. Daniel Carranza er fćddur í Bilbao og hóf ungur gítarnám í Madrid. Hann hefur sérstakan áhuga á eldri strengjahljóđfćrum eins og lútu, ţeorbu, vihuelu og barokkgítar. Í námi sínu í París lagđi hann sérstaka rćkt viđ basso continuo og fór međal annars í tíma til Hopkinson Smith. Daniel Carranza er eftirsóttur kennari og hefur kennt viđ tónlistarskóla í Bilbao, Guatemala og Nicaragua. Sem einleikari hefur hann komiđ víđa fram í Evrópu, í Austurlöndum nćr og í Miđameríku. Eftir hann liggur fjöldi hljómdiska međ spćnskri endurreisnartónlist. Daniel hefur einnig fengist viđ tónsmíđar og hefur međal annars samiđ leikhús- og kvikmyndatónlist. Ađgangseyrir ađ tónleikunum eru 1.000 kr. og 500 kr. fyrir eldri borgara og börn.

- Ekki skráđ - /  
Alţjóđlega barokksveitin í Haag ásamt íslenskum flytjendum.     2.11.2006 10:13:48 

Frönsk sálumessa á allra heilagra messu í Hallgrímskirkju Sunnudaginn 5. nóvember gengst Listvinafélag Hall­gríms­kirkju fyrir sálu­messu­tónleik­um. Ađ ţessu sinni fćr List­vina­félagiđ kammerkórinn Schola cantorum og Alţjóđlegu barokk­sveitina í Haag til liđs viđ sig. Flutt verđa verkin Messe de requiem og De profundis eftir franska tónskáldiđ André Campra (1660-1744) en hvorugt ţessara verka hefur veriđ flutt hér á landi áđur. Hefđ hefur skapast fyrir ţví ađ flytja sálumessu í Hallgrímskirkju á allra heilagra messu. Margir leggja leiđ sína í kirkjuna á ţessum degi til ađ minnast látinna ástvina sinna á hátíđ­legan hátt og hefur undanfarin ár veriđ uppselt á sálumessutónleika Listvina­félags­ins. Stjórnandi er Hörđur Áskelsson . Tónleikarnir hefjast kl. 17. Listvinafélagiđ býđur félögum F.Í. T. 25% afslátt á tónleikana og er miđaverđ kr. 1500 í stađ kr. 2000. Schola cantorum hefur í gegnum tíđina flutt ýmis verk barokkmeistaranna viđ góđan orđstír. Ađ ţessu sinni skipa kórinn tíu söngvarar en nokkrir ţeirra fara jafnframt međ einsöngshlutverk. Schola cantorum var útnefndur Tónlistarhópur Reykjavíkur 2006. Alţjóđlega barokksveitin í Haag er íslenskum tónleikagestum ađ góđu kunn en sveitin hefur undanfarin misseri starfađ međ kórum Hallgrímskirkju viđ flutning á tveimur stórvirkjum Jóhanns Sebastíans Bachs; Matteusarpassíunni og Jólaóratóríunni tvenn síđustu jól. Hljómsveitin er skipuđ ungu fólki sem hefur sérmenntađ sig í flutningi gamallar tónlistar á upprunaleg hljóđfćri og hlotiđ mikiđ lof fyrir leik sinn. Ađ ţessu sinni er hljómsveitin skipuđ 11 hljóđfćraleikurum og eru 3 íslenskir tónlistarmenn međal ţeirra, Peter Thomkins barokkóbó og Guđrún Hrund Harđardóttir og Svava Bernharđsdóttir, sem leika á barokkvíólur.

- Ekki skráđ - /  
Ný heimasíđa F.Í.T.    1.11.2006 01:25:49 

Ég hef veriđ ađ vinna í ţessari heimasíđu undanfariđ, setja inn upplýsingar, myndir o.fl. Ţađ vćri vel ţegiđ ađ fá 'komment' frá félagsmönnum um ţađ sem betur mćtti fara eđa ţađ sem ţeir eru ánćgđir međ. Ţađ er margt eftir enn, heilmikiđ efni og nánari upplýsingar sem ađ koma međ tíđ og tíma. En ţetta er ágćtisbyrjun! Međ kveđju, Kristín Mjöll

- Ekki skráđ - /  
1 2

Félag íslenskra tónlistarmanna, Rauđagerđi 27, 108 Reykjavík, Sími: 588-8255, fiston@fih.is