Styrkir F.Í.T.
Félag íslenskra tónlistarmanna veitir styrki til eftirfarandi verkefna á árs grundvelli:
1) Útgáfu hljómdiska með fjármagni frá SFH
2) Tónleika á landsbyggðinni með fjármagni úr Tónlistarsjóði
Styrkirnir eru auglýstir fyrra hluta árs (mars – apríl) og úthlutað á aðalfundi á vorin (apríl-maí). Styrkhafar Hljómdiskasjóðs fá 32 mánuði til ljúka við útgáfu geisladisksins sem sótt var um styrk til. Tónleikar á landsbyggðinni fara fram frá janúar til desember ári eftir úthlutun.
Sjá nánar um Hljómdiskasjóð hér og Tónleika á landsbyggðinni hér.