Umsóknareyðublöð
Allar umsóknir má senda í netpósti til félagsins, senda í almennum pósti eða koma þeim til skrifstofu félagsins að Rauðagerði 27, 108 Reykjavík. Póststimpill gildir. Móttaka rafrænna umsókna verður staðfest.
Aðild að F.Í.T.
Hér getur þú sótt umsóknareyðublað til að sækja um að gerast félagsmaður í Félagi íslenskra tónlistarmanna. Umsóknir verða afgreiddar á aðalfundi félagsins sem haldinn er í seinni hluta apríl eða maí. Næsti aðalfundur F.Í.T. verður miðvikudagskvöldið 19. maí 2010 kl. 19:00 í Rauðagerði 27 :
Umsókn um aðild (doc)
Umsókn um aðild (pdf)
Styrkur úr Hljómdiskasjóði
Hér getur þú sótt umsóknareyðublað til að sækja um styrk úr Hljómdiskasjóði. Úthlutað er úr sjóðnum einu sinni á ári. Úthlutun fer fram á aðalfundi félagsins og er umsóknarfrestur auglýstur í mars-apríl. Næsti umsóknarfrestur er til miðnættis sunnudaginn 2. maí 2009:
Umsókn - Hljómdiskasjóður (doc)
Umsókn - Hljómdiskasjóður (pdf)
Styrkur til tónleikahalds á landsbyggðinni
Hér getur þú sótt umsóknareyðublað til að sækja um styrk til tónleikahalds á landsbyggðinni. Úthlutað er úr sjóðnum einu sinni á ári. Úthlutun fer fram á aðalfundi félagsins og er umsóknarfrestur auglýstur í mars-apríl. Næsti umsóknarfrestur er til miðnættis sunnudaginn 2. maí 2009:
Umsókn - Landsbyggðartónleikar (doc)
Umsókn - Landsbyggðartónleikar (pdf)
"Suðræn sveifla" - tangónámskeið undir stjórn Olivier Manoury dagana 9.-12.júní 2010
Umsóknareyðublað
Félag íslenskra tónlistarmanna, Rauðagerði 27, 108 Reykjavík, Sími: 588-8255, fiston@fih.is