|
Um F.Í.T
F.Í.T. var stofnað árið 1940 og er fagfélag íslenskra tónlistarmanna, einleikara, einsöngvara og stjórnenda. Það er skipað um 160 félagsmönnum sem greiða árgjald til félagsins. Aðalfundur kýs 5 manna stjórn, og 3 varamenn, sem fundar mánaðarlega. Aðalfundir eru haldnir á vorin og er þá nýjum félögum veitt innganga með atkvæðagreiðslu. Tilgangur félagsins er að gæta hagsmuna félagsmanna sinna og koma fram fyrir þeirra hönd í baráttumálum þeirra eftir því sem ástæða þykir hverju sinni, með því að vinna að framgangi tónlistarlífs á Íslandi, m.a. í samstarfi við önnur félagasamtök, beita sér fyrir vandaðri tónlistarumfjöllun í fjölmiðlum, og vinna að samvinnu og kynningu félagsmanna. Félagið stendur fyrir ýmsum verkefnum í samvinnu við menningarstofnanir í þessum tilgangi, tónleikahaldi á landsbyggðinni í samstarfi við FÍH, tónleikaröð í Norræna húsinu, Klassík í Vatnsmýrinni, og verkefnum í samstarfi við Menningarmiðstöðina Gerðuberg. Félagið úthlutar styrkjum til félagsmanna einu sinni á ári úr Hljómdiskasjóði félagsins með fjármagni frá Sambandi flytjenda og hljómplötuframleiðenda SFH. Nefndir og ráð sem F.Í.T. á aðild að:
Hverjir geta verið í félaginu? Félagsmenn geta orðið tónlistarmenn (einleikarar; einsöngvarar; stjórnendur) sem uppfylla eftirtalin skilyrði: Tónlistarmenn sem falla undir þessa skilgreiningu eru hvattir til að sækja um aðild að F.Í.T. Nýir félagar eru aðeins teknir inn á aðalfundi félagsins á vorin. Umsóknir þar sem fram kemur menntun og helstu störf á tónlistarsviðinu má senda í netpósti til félagsins fiston@fih.is, senda í pósti eða skila á skrifstofu F.Í.T. að Rauðagerði 27, 108 Reykjavík.
|
