|
Félagsgsfundur F.Í.T. miðvikudaginn 27. apríl Boðað er til félagsfundar miðvikudaginn 27. apríl 2011, í Vestursal FÍH, Rauðagerði 27. Fundurinn hefst kl. 19:30 með úthlutun styrkja úr Hljómdiskasjóði og til Landsbyggðartónleika. Boðið verður upp á léttar veitingar. Fundarstörf hefjast kl. 20:15 samkvæmt eftirfarandi fundardagskrá: 1.Frestun aðalfundar Á fundinum verður borin upp til samþykktar tillaga um frestun aðalfundar félagsins til haustsins 2011 af sérstökum ástæðum sem verða kynntar á fundinum. 2.Umræður um framtíð og rekstur F.Í.T. Á fundinum verða einnig lagðar fram til umræðu tillögur stjórnar um hvernig bregðast megi við nýrri stöðu í rekstarafkomu félagsins með tilkomu breytinga á úthlutun fjármagns frá SFH (Samtök flytjenda og hljómplötuframleiðenda). Breytingarnar fela í sér að einstaklingsúthlutun byggð á réttindamagni hefur verið tekin upp en fjármagn til sameiginlegra verkefna og sjóða verður verulega skert í framtíðinni. Fyrirkomulagið hefur töluverð áhrif á rekstrarafkomu FÍT og Hljómdiskasjóð félagsins. Breytingarnar setja afkomu og tilvist félagins í ákveðið uppnám sem nauðsynlegt er að bregðast við 3.Skýrsla verkefnisstjóra landsbyggðartónleika 4.Kynning á nýju merki félagsins og vinnu við nýja heimasíðu 5.Önnur mál Breytinga er að vænta á skipun stjórnar á næsta aðalfundi. Þeir félagsmenn sem áhugasamir eru um stjórnarsetu eru hvattir til að gefa sig fram, senda tölvupóst á fiston@fih.is eða hafa samband við formann í síma 846-7816 Allir félagsmenn eru hvattir til góðrar þátttöku! Með kveðju, Stjórnin . |
