|
Um Klassík í Vatnsmýrinni
Starfsárið 2010 býður upp á tónleika með erlendum einleikurum í samvinnu við norræn einleikarafélög, ítalska tónleikahaldara og með íslensku listafólki úr röðum félagsmanna. Í ár er innan vébanda tónleikaraðarinnar haldin norræn tónlistarhátíð dagana 10.-12. júní í tilefni af 70 ára afmæli FÍT. Tónleikarnir eru að jafnaði á miðvikudagskvöldum. Aðgangseyrir á tónleikana er 1.500 kr og er sérstaklega hvatt til aðsóknar ungs fólks með því að veita öllum undir 21 árs aldri ókeypis aðgang að tónleikunum. Stjórn tónleikaraðarinnar sér um framkvæmd og skipulagningu auk listrænnar stjórnunar. Tónleikastjórn skipa: Sigurður Bragason, Guðrún Sigríður Birgisdóttir og Jón Sigurðsson. |
|
Tónleikar 2010 Miðvikudagur 24. mars kl. 20:00 “Gestir frá Ítalíu” “Suður mætir Norðri” - Norræn tónlistarhátíð 10. – 12. júní Miðvikudagur 22. september kl. 20:00 Miðvikudagur 20. október kl. 20:00
|



