|
ÞRÖSTUR Í TRÉ - Kammertónleikar Um tónleikaröðina Tónleikaröð FÍT var á síðasta ári haldin á Kjarvalsstöðum í samvinnu við Listasafn Reykjavíkur við góðar undirtektir áheyrenda. Af óviðráðanlegum ástæðum varð ekki framhald á því samstarfi en í staðinn hefur verið tekið upp samstarf við Norræna húsið með aukinni áherslu á norrænt og alþjóðlegt samstarf. Tilgangurinn með tónleikaröðinni er að gefa áheyrendum tækifæri til að hlýða á fyrsta flokks innlenda og erlenda listamenn með áherslu á “sólistann” annars vegar og “kammertónlist” hins vegar. Tónleikarnir verða ávallt á miðvikudagskvöldum og eru fernir á starfsárinu 2009, tvennir með íslenskum flytjendum og tvennir með norrænum flytjendum fyrir samvinnu FÍT við norræn einleikarafélög í Nordisk Solistråd. Miðaverði er stillt í hóf og er sérstaklega reynt að hvetja til aðsóknar ungs fólks með því að veita þeim frían aðgangseyri. Stjórn tónleikaraðarinnar sér um framkvæmd og skipulagningu auk listrænnar stjórnunar. Tónleikastjórn skipa: Laufey Sigurðardóttir, Hallveig Rúnarsdóttir og Jón Sigurðsson. |
|
Aðrir tónleikar starfsársins: Miðvikudagur 20. maí kl. 20:00 Miðvikudagur 16. september kl. 20:00 Miðvikudagur 21. október kl. 20:00
|




