Með breytingum frá framhaldsaðalfundi félagins 21. september 2009
1. grein
Félagið heitir “Félag íslenskra tónlistarmanna" og er deild í Bandalagi íslenskra listamanna. Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík.
2. grein
Tilgangur félagsins er:
a: Að gæta hagsmuna félagsmanna í hvívetna, m.a. með því að hafa áhrif á kaupgjald fyrir störf tónlistarmanna og úthlutun fjár og styrkveitinga til tónlistarmála.
b: Að koma fram fyrir hönd félagsmanna í öðrum hagsmunamálum þeirra eftir því sem ástæður þykja til hverju sinni.
c: Að beita sér fyrir vandaðri tónlistarumfjöllun í fjölmiðlum.
d: Að efla samvinnu og kynningu félagsmanna.
3. grein
Rétt til að gerast félagar eiga þeir, sem fullnægja eftirtöldum skilyrðum:
a: Félagsmenn geta orðið tónlistarmenn (einleikarar; einsöngvarar; stjórnendur) sem uppfylla eftirtalin skilyrði:
Viðkomandi skal hafa stundað ítarlegt tónlistarnám (háskólanám eða sambærilegt), vera virkur í íslensku tónlistarlífi og hafa hlotið ótvíræða viðurkenningu fyrir tónlistarstörf sín.
b: Umsóknir um aðild að félaginu skulu berast til stjórnar. Umsóknir eru bornar upp á aðalfundi og teljast samþykktar, greiði meirihluti fundarmanna atkvæði með þeim.
4. grein
Árgjald sé samþykkt á aðalfundi. Greiði félagsmaður eigi gjöld sín fyrir aðalfund missir hann atkvæðisrétt, þar til hann hefur lokið skuld sinni við félagið. Vanræki félagsmaður að greiða gjöld sín í full tvö ár telst hann ekki lengur félagi.
5. grein
Stjórn félagsins skipa fimm menn: formaður, varaformaður, ritari, gjaldkeri og meðstjórnandi. Skal hún ásamt þriggja manna varastjórn og tveim endurskoðendum kosin á aðalfund ár hvert til eins árs í senn. Kosning fer fram skriflega.
6. grein
Reikningsár félagsins miðast við 1. apríl.
7. grein
Gjaldkeri geymir fjármuni félagsins í banka eða ávaxtar þá á þann hátt, sem aðalfundur samþykkir.
8. grein
Aðalfundur félagsins er löglegur ef rétt er til hans boðað og skal hann haldinn fyrri hluta árs.
9. grein
Aðalfundarstörf eru þessi:
a: Fundargerð síðasta aðalfundar borin upp til samþykktar.
b: Skýrsla formanns.
c: Lagðir fram til samþykktar endurskoðaðir félagsreikningar fyrir síðasta reikningsár.
d: Tillögur til lagabreytinga ef fram eru bornar.
e: Umsóknir nýrra félaga.
f: Kosin stjórn, varastjórn og skoðunarmenn reikninga.
g: Önnur mál.
10. grein
Stjórnin skal kalla saman fund, ef minnst 5 félagsmenn æskja þess og tilgreina ástæðu.
11. grein
Almennur félagsfundur telst lögmætur, hafi til hans verið boðað með tveggja daga fyrirvara.
12. grein
Lögum þessum má ekki breyta nema á lögmætum aðalfundi, enda greiði 2/3 hlutar fundarmann atkvæði með breytingunni.