FÉLAG ÍSLENSKRA TÓNLISTARMANNA

  • Fréttir

  • Eldri fréttir

  • Verkefni

  • Um félagið

  • More

    klassísk deild FÍH
    • Wix Facebook page
    • facebook-square
    • Twitter Square

    Fréttir af aðalfundi 2019

    July 21, 2019

    Aðalfundur FíT

    May 15, 2019

    Harmonikkutríó í Hörpuhorni - velkomin heim!

    May 15, 2019

    Styrkir úr hljómdiskasjóði

    March 9, 2019

    Á vængjum söngsins - Klassík í Vatnsmýrinni

    February 16, 2019

    Velkomin heim: Fundur

    February 9, 2019

    Raddir í Loftinu - Klassík í Vatnsmýrinni

    November 16, 2018

    Sónötur og ljóð - Tónleikar í Vatnsmýrinni

    October 16, 2018

    Velkomin heim: Textar í gegnum tónlist!

    October 16, 2018

    Umsóknir fyrir tónleikaröðina Velkomin heim

    July 15, 2018

    Please reload

    Nýlegar færslur

    I'm busy working on my blog posts. Watch this space!

    Please reload

    Featured Posts

    Tríó Sírajón - klassík í Vatnsmýrinni

    20.02.2017

    Tríó Sírajón leikur á tónleikum í tónleikaröðinn Klassík í Vatnsmýrinni í Norræna Húsinu þann 21. febrúar kl. 20.00. Flutt verður litrík dagsrkra með tónverkum frá tuttugustu öld: Largo eftir Charles Ives, tríó eftir Gian Carlo Menotti, þrír dúettar eftir Dimitri Schostakovich, tríó eftir Aram Khatchaturian og La belle jardinière eftir Jónas Tómasson.

    Aðgangseyrir á tónleikana er kr. 2.500 en 1.500 fyrir eldri borgara, öryrkja og félagsmenn FÍT - klassískrar deildar FÍH.

    Sérstaklega er hvatt til aðsóknar ungs fólks með því að veita tónlistarnemum og öllum 20 ára og yngri ókeypis aðgang að tónleikunum.

    Tríó Sírajón hefur starfað frá árinu 2010 og haldið fjölmarga tónleika hér heima og erlendis. Tríóið hefur gjarnan leitað samstarfs við aðra listamenn og pantað verk frá íslenskum tónskáldum, meðal annars Þórði Magnússyni og Jónasi Tómassyni.

    Rússland og Bandaríkin eru tónlistarlegir jöfrar sem mynda spennu á mörgum sviðum lífs okkar sitt hvoru megin við Atlantshafshrygginn, þar sem við sitjum á jarðflekamótum lengst í norðri og Jónas okkar Tómasson hvað nyrst. Þegar Jónas samdi verkið fyrir Tríó Sírajón var hann með mynd Paul Klee, La belle jardinière -garðyrkjukonan fagra - í huga, en einnig umhverfissinnann og skógræktarkonuna Vigdísi Finnbogadóttur, og er verkið tileinkað henni.
    Shostakovich, sem er þekktastur fyrir sinfóníur sínar, sækir efni í ríkulegan brunn leikhús og kvikmyndatónlistar sinnar fyrir dúóin þrjú.
    Í verki Menottis skín laglínugáfa hans sterkt í gegn, og þó það sé samið 1996 horfir hann hér frekar til fortíðar en samtíma síns. 
    Charles Ives lagði þátt úr fiðlusónötu frá námsárunum til grundvallar verkinu Largo, sem hann samdi árið 1902. Það þótti framúrstefnulegt og ber engan keim af þjóðlegum blæ sem einkenndi seinni verk hans.
    Armeninn Aram Khatchaturian var gestur Sinfóníuhljómsveitar Íslands á vormánuðum 1951 og var það hljómsveitinni mikil hvatning. Tónlist Khatchaturians er litrík og tilfinningaþrungin, laglínurnar glæsilegar með dálítið austrænum blæ. 

    Laufey Sigurðardóttir sem starfað hefur í Sinfóníuhljómsveit Íslands til fjölda ára, hefur jafnframt komið fram sem einleikari og verið ötul við flutning stofutónlistar á Íslandi og erlendis. Hún er listrænn stjórnandi hinna árlegu tónlistarhátíða "Músík í Mývatnssveit" og "Afmælisdagur Mozarts".
    Einar Jóhannesson var leiðandi klarínettuleikari Sinfóníuhljómsveitar Íslands um áratuga skeið. Hann hefur komið fram sem einleikari og meðleikari á fjölda tónleika innan lands sem utan, og var stofnfélagi Blásarakvintetts Reykjavíkur. Einar er félagi í miðaldasönghópnum Voces Thules.
    Anna Áslaug Ragnarsdóttir er úr hópi fjölda framúrskarandi tónlistarmanna sem hóf tónlistarnám sitt á Ísafirði. Anna hefur starfað sem einleikari og meðleikari hér á landi og víða erlendis. Hún er búsett í München og Reykjavík.

     

     

    Please reload

    Follow Us

    Fræðslukvöld

    Kítón

    Nordplus

    Námskeið

    Rannís

    Please reload

    Search By Tags

    July 2019 (1)

    May 2019 (2)

    March 2019 (1)

    February 2019 (2)

    November 2018 (1)

    October 2018 (2)

    July 2018 (2)

    May 2018 (1)

    April 2018 (1)

    March 2018 (1)

    February 2018 (2)

    January 2018 (1)

    November 2017 (2)

    April 2017 (2)

    March 2017 (3)

    February 2017 (3)

    January 2017 (1)

    Please reload

    Archive
    • Facebook Basic Square
    • Twitter Basic Square
    • Google+ Basic Square
    Webmaster Login