Verksvið
 

Verkefni stjórnar

Félagið sinnir ýmsum hagsmunamálum félagsmanna og hefur umsjón með listrænum samstarfsverkefnum við ýmsa aðila. Fréttabréf eru send rafrænt og erlendum samskiptum sinnt eftir föngum. Fjöldi nefndarstarfa fylgir formanns- og stjórnarstörfum.
 
Félagið úthlutar árlega úr Hljómdiskasjóði til félagsmanna. Veittir eru 2-5 styrkir á ári eftir fjármagnsstöðu sjóðsins með tekjum frá SFH.

Stjórn félagsins hefur undanfarin ár gengist fyrir nokkrum verkefnum í samvinnu við menningarstofnanir. Þar ber helst að nefna:

Tónleikar á landsbyggðinni í samstarfi við rúmlega 30 tónlistarfélög, tónlistarskóla og menningarmálanefndir á landsbyggðinni með styrk frá Menntamálaráðuneytinu. Verkefnisstjóri annast framkvæmd og skipulagningu verkefnisins.

Klassík á Kjarvalsstöðum, kammertónleikaröð á vegum félagsins í samstarfi við Listasafn Reykjavíkur á Kjarvalsstöðum. Stjórn tónleikanna sem skipuð er 3 félagsmönnum (2 úr stjórn) sér um framkvæmd og skipulag í samvinnu við starfsfólk.

Dagur hljóðfærisins í samstarfi við Menningarmiðstöðina Gerðuberg með styrk frá Reykjavíkurborg

Háskólatónleikar í samstarfi við H.Í.

Nefndir og ráð sem F.Í.T .á aðild að:
• Bandalag íslenskra listamanna
• Samband flytjenda og hljómplötuframleiðenda
• Samtónn
• Íslensku tónlistarverðlaunin – formaður frá FÍT
• Tónlistarráð
• Tónlist fyrir alla (sameiginlegur fulltrúi með FÍH)
• Samtök um byggingu tónlistarhúss
• Nordisk Solistråd.