Styrkir til tónleikahalds á landsbyggðinni
Auglýst er eftir umsóknum um styrki til Landsbyggðartónleika 2018. Verkefnið er á vegum Félags íslenskra tónlistarmanna - klassískrar deildar FÍH í samvinnu við FÍH. Verkefnið er styrkt af Tónlistarsjóði og FÍH.Samkvæmt markmiðum verkefnisins er óskað eftir: · efnisskrá með sígildri tónlist EÐA · efnisskrá með blöndu / samtvinnuðu efni af sígildri tónlist og öðrum tónlistarstefnum Æskilegt er að flytjendur gefi kost á samstarfi við tónlistarskóla á tónleikastað, sé þess óskað, t.d. með námskeiðahaldi eða Hver styrkur er ætlaður til þriggja tónleika í samstarfi við tónleikahaldara á landsbyggðinni. Þóknun skiptist á milli félagsins og tónleikahaldara. Ferðakostnaður og uppihald greiðist af tónleikahaldara. Verkefnisstjóri annast skipulagningu og samskipti við samstarfsaðila. Styrkurinn gildir frá 1. janúar 2018 til 1. september 2019. Þóknun fyrir eina tónleika hækkar frá fyrri árum og er nú:
• 100.000 kr. fyrir einleikstónleika • 140.000 kr. fyrir dúótónleika • 150.000 kr. fyrir tríótónleika • 170.000 kr. fyrir kvartetttónleika • 190.000 kr. fyrir kvintetttónleika • Þóknun til stærri hópa er 40 þúsund kr. á mann fyrir eina tónlei Í umsókninni skal koma fram:
· nafn umsækjanda (sem jafnframt er ábygrðarmaður umsóknar) og annarra þátttakenda, ef við á. Auk þess, hljóðfæri hvers þáttakanda. · Félagsaðild (FÍT og / eða FÍH) allra þáttakenda. Vinsamlegast athugið að umsóknin er aðeins tekin til umfjöllunar að allir þáttakendur séu félagar í öðru hvoru félaginu, eða báðum, og skuldlausir við sitt félag. Athugið að miðað er við A-deild FÍH. · Stutt æviágrip þáttakenda · efnisskrá (þarf ekki að vera fullmótuð) · stutt lýsing á efnisskránni · góð, nýleg ljósmynd af öllum þátttakendum, helst saman á einni mynd með hljóðfæri en annars í sitt hvoru lagi. Mynd skal ekki líma í umsókn heldur senda sem sérstakt skjal. · heimilisfang, netfang, vefsíða (ef við á) og símanúmer umsækjanda, sem jafnframt er ábyrgðarmaður umsóknar. · Þá skal þess getið hvort umsækjandi hefur áður fengið styrk úr Landsbyggðartónleikum · Vinsamlegast tilgreinið, eftir því sem kostur er, hvort gefinn sé kostur á tónleikahaldi á öllu tímabilinu sem styrkurinn tekur til þ.e. frá 1. Janúar 2018 til 1. Sept. 2019, eða aðeins hluta þess tíma.
Umsókunum skal skilað bæði í á pdf formi og opnu skjali. Umsókn er þá aðeins tekin til umfjöllunar að umsækjandi og allir Jafnframt er skilvís greiðsla félagsgjalda skilyrði. Umsóknareyðublað má nálgast

. Tekið skal fram að vönduð umsókn eykur líkur á úthlutun. Umsóknarfrestur vegna Landsbyggðartónleika er til miðnæsttis sunnudaginn 30. apríl 2017
Umsóknir skulu sendar í tölvupósti í netfangið fiston@fih.is. Móttaka umsókna verður staðfest.
Verkefnisstjóri veitir nánari upplýsingar og svarar spurningum.
f.h. Félags íslenskra tónlistarmanna – klassískrar deildar FÍH & FÍH Þórarinn Stefánsson tstef@simnet.is / gsm 868 9845 verkefnisstjóri