French Connection - Klassík í Vatnsmýrinni, 21. febrúar 2018 kl. 20:00
Duo Ultima, Guido Bäumer á alt-saxófón og Aladár Rácz á píanó flytja litríka og spennandi dagskrá, alfarið á frönskum nótum með tónlist eftir André Caplet, Claude Debussy, Jean Français, Darius Milhaud, Florent Schmitt og André Jolivet. Guido og Aládar hafa starfað saman í þrettán ár, hafa haldið fjölda tónleika á Íslandi og fóru nýverið í tónleikaferð um Evrópu m.a.

með viðkomu í Þýskalandi, Spáni, Ungverjalandi og Rúmeníu. Alþjóðlega útgáfufyrirtækið Odrarek Records hefur gefið út þrjá geisladiska með Duo Ultima, sá síðasti, French Connection, kom út vorið 2017.
Guido Bäumer er fæddur í Norður Þýskalandi en hefur búið og starfað á Íslandi um árabil. Hann stundaði nám í Bremen, Basel í Sviss og við Bowling Green State University í Ohio. Hann hefur leikið einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands,Caput hópnum og Kammersveit Reykjavíkur. Aladár Rácz er fæddur í Rúmeníu og stundaði nám í Búkarest og Búdapest. Við upphaf ferils síns vann hann til fjölda verðlauna í alþjóðlegum keppnum og hélt tónleika víðs vegar um heim í kjölfarið auk þess að leika inn á geisladiska. Hann hefur verið mikilvirkur einleikari og meðleikari á Íslandi og starfað bæði á Norðurlandi og Austurlandi, auk höfuðborgarsvæðissins. Hann hefur haldið einleikstónleika, tekið þátt í flutningi kammerverka og með sinfóníuhljómsveit Norðurlands hefur hann flutt píanókonserta nr. 1 eftir Beethoven og Brahms.