top of page

Aríur og órar - Berta Dröfn og Sigurður Helgi!


Aríur og órar eru síðustu tónleikarnir á öðru starfsári tónleikaraðarinnar Velkomin heim, innan Sígildra sunnudaga. Þeir fara fram í Hörpuhorni, opnu rými á annari hæð og aðgangur er ókeypis. Berta Dröfn Ómarsdóttir sópran og Sigurður Helgi Oddsson píanóleikari flytja aríur og söngljóð um ást og gleði, ástríður og missi, eftir Donizetti, Händel, Humperdinck, Purcell og Tosti. Berta Dröfn Ómarsdóttir hefur sungið í mörgum þekktustu tónleikahúsum heims, m.a. á Galatónleikum í Carnegie Hall í New York, sumarið 2017. Tónleikarnir voru hluti af sumarhátíð MOS, þar sem Berta söng í Töfraflautunni eftir Mozart. Hún hefur einnig sungið í Scala óperunni í Mílanó, í Hörpu í Reykjavík; í höll í Montepulciano í Toscana-héraðinu á Ítalíu, í kastala í litlu fjallaþorpi við ítölsku alpana, í óperuuppsetningum með sinfóníuhljómsveiti Bolzano borgar, og í Salnum í Kópavogi. Berta útskrifaðist með hæstu einkunn eftir mastersnám í söng við Conservatorio Claudio Monteverdi í Bolzano á Ítalíu, árið 2016. Söngferill hennar hófst í barnakór Grindavíkurkirkju undir stjórn Siguróla Geirssyni og Vilborgu Sigurjónsdóttur, þar sem Berta fékk sín fyrstu tækifæri til að syngja einsöng. Á unglingsárunum söng hún með unglingakór hjá Esther Helgu Guðmundsdóttir og sótti einkatíma til hennar. Með þennan grunn frá Grindavík fór Berta í Söngskólann í Reykjavík, og hefur verið þar meira og minna síðan, fyrst sem nemandi og síðar sem starfsmaður. Söngkennarar Bertu við skólann eru Elísabet F. Eiríksdóttir, Ólöf Kolbrún Harðardóttir og Viðar Gunnarsson. Berta hefur sótt einkatíma, masterklassa og námskeið víða, t.d. hjá David Jones, Janet Perry, Gemma Bertagnolli, Gerhild Romberger, Shirai Mitsuko og Jónu Fanneyju Svavarsdóttur. Sigurður Helgi Oddsson lauk burtfararprófi í píanóleik frá Tónlistarskólanum á Akureyri. Frá 2008 til 2011 stundaði hann tónlistarnám í Berklee College of Music í Boston, Bandaríkjunum, og lauk þaðan B.Mus. gráðu í píanóleik, hljómsveitarstjórn og kvikmyndatónsmíðum. Hann hefur siðan þá starfað sem meðleikari, stjórnandi og kennari á hinum ýmsu sviðum tónlistargeirans.


Featured Posts
Check back soon
Once posts are published, you’ll see them here.
Nýlegar færslur
Archive
Search By Tags
No tags yet.
Follow Us
  • Facebook Basic Square
  • Twitter Basic Square
  • Google+ Basic Square
bottom of page