top of page

Sónötur og ljóð - Tónleikar í Vatnsmýrinni

Á fyrstu tónleikum vetrarins í Tónleikaröðinni Klassík í Vatnsmýrinni í Norræna húsinu leika kínverski sellóleikarinn Chu Yi-Bing og píanóleikarinn Aladár Rácz sellósónötu nr. 1 eftir Ludvig van Beethoven, sónötu eftir Claude Debussy auk ljóða eftir Gabriel Fauré og einnig verkið Eclogue eftir kínverska tónskáldið Sha Hankun. Chu Yi-Bing stundaði nám í París og hefur verið eftirsóttur einleikari um allan heim allt frá því hann bar sigur úr býtum í alþjóðlegri keppni í Genf. Hann var fyrsti sellóleikari sinfóníuhljómsveitar Basel í fimmtán ár en er nú prófessor við Central Conservatory of Music í Beijing, starfar með Chu Yi-Bing Cello Ensemble og sem skipuleggjandi Super Cello tónlistarhátíðarinnar i Kína. Aladár Rácz fæddist í Rúmeníu og stundaði námi í Búkarest og Búdapest. Hann hefur komið fram á tónleikum víðsvegar um heim, leikið inn á geisladiska og unnið til verðlauna fyrir píanóleik í alþjóðakeppnum. Hann kennir nú við Tónlistarskólann Do Re Mi, Söngskóla Sigurðar Demetz og er einnig meðleikari í Listaháskólanum, auk þess koma fram á kammertónleikum og ljóðakvöldum. Aðgangseyrir er kr. 3.000, 2.000 kr. fyrir eldri borgara og öryrkja, ókeypis fyrir nemendur og gesti 20 ára og yngri. Klassík í Vatnsmýrinni er tónleikaröð Félags íslenskra tónlistarmanna – klassískrar deildar FÍH í samvinnu við Norræna húsið. Aalto bistro er opið til kl 21.30 á tónleikadag


Featured Posts
Check back soon
Once posts are published, you’ll see them here.
Nýlegar færslur
Archive
Search By Tags
No tags yet.
Follow Us
  • Facebook Basic Square
  • Twitter Basic Square
  • Google+ Basic Square
bottom of page