top of page

Klassík í Vatnsmýrinni - 22. nóv. 2017 Nóbel í tónum - Noble Nobel

  • Nov 16, 2017
  • 2 min read

Bylgja Dís Gunnarsdóttir sópran og Hrönn Þráinsdóttir píanóleikari

flytja dagskrá helgaða tveimur nóbelskáldum, þeim Halldóri Laxness og Bob Dylan. Sönglögin við ljóð Laxness eru samin árið 2014 af Eiríki Árna Sigtryggssyni sem starfar jöfnum höndum sem myndlistarmaður og tónskáld. Ljóðaflokkinn „Mr. Tambourine man“ við ljóð Bob Dylans var saminn af John Corigliano árið 2000, en Corigliano hefur unnið Pulitzer verðlaun, fimm Grammy verðlaun og Óskarsverðlaun fyrir tónverk sín. Bylgja Dís Gunnarsdóttir stundaði söngnám við Royal Scottish Academy of Music and Drama og hefur tekið þátt í óperuuppfærslum hjá British Youth Opera, The Schottish Opera og Íslensku óperunni. Árið 2010 vann Bylgja Dís... til fyrstu verðlauna í Barry Alexander International Vocal Competition og söng á tónleikum verðlaunahafa í Carnegie Hall. Hún hefur haldið fjölda ljóðatónleika og kirkjutónleika og kemur reglulega fram í uppfærslum Óp-hópsins. Nýlega söng Bylgja Dís hlutverk Sentu í rokkuppfærslu Norðuróps á Hollendingnum fljúgandi eftir Wagner. Hrönn Þráinsdóttir sérhæfði sig í meðleik með söngvurum og í kammermúsík á námsárunum í Freiburg og Stuttgart. Hrönn hefur komið fram á tónleikum víða, m.a. í Þýskalandi, Austurríki, Ítalíu, Noregi, Danmörku, Grænlandi, Færeyjum og á Íslandi sem einleikari, meðleikari og við flutning kammertónlistar auk þess að hafa hljóðritað fyrir útvarp og leikið inn á geisladiska. Hún hefur tekið þátt í fjölda tónlistarhátíða og frumflutt tónverk m.a. á Myrkum músíkdögum og Hjóðön í Hafnarborg. AALTO Bistro er opið til kl 21.30 á miðvikudagskvöldum. Aðgangseyrir er kr. 2.500, 1.500 kr. fyrir eldri borgara og öryrkja, ókeypis fyrir nemendur og gesti 20 ára og yngri. Miðasala á Tix.is og við innganginn. Klassík í Vatnsmýrinni er tónleikaröð Félags íslenskra tónlistarmanna – klassískrar deildar FÍH í samvinnu við Norræna húsið.NÓV.22Nóbel í tónum - Noble Nobel


 
 
 

Comments


Featured Posts
Nýlegar færslur
Check back soon
Once posts are published, you’ll see them here.
Archive
Search By Tags
Follow Us
  • Facebook Basic Square
  • Twitter Basic Square
  • Google+ Basic Square
Félag íslenskra tónlistarmanna (FÍT) er klassísk deild innan Félags hljómlistarmanna (FÍH).
  • Facebook
Félag íslenskra tónlistarmanna (FÍT)
Rauðagerði 27 | 108 Reykjavík
Sími 588 8255
fiston@fih.is
bottom of page